Alls taka þátt 163 lið í Ólympíumótinu í netskák sem hefst í lok júlí. Í dag varð það staðfest að Ísland lendir í 2. deild mótsins sem fram fer 12.-16. ágúst. Það munaði afar mjóu en Ísland var síðasta lið inn í deildina. Miðað var sameiginleg árangur í opnum og kvennaflokki á síðasta ólympíuskákmóti.
Alls tefla 50 lið í 2. deild. 35 lið eru staðfest en 15 lið úr 3. deild bætast svo við. Teflt verður í fimm tíuliða riðlum. Efstu þrjú liðin í hverjum liði vinna sér keppnisrétt í 1. deild.
Upplýsingar um liðin 35 má finna á Chess-Results. Ísland er nr. 30 í stigaröð liðanna.
Meðal liða í 2. deild má nefna Þjóðverja, Spánverja, Englendinga og Ungverja. Svíar og Carlsen-lausir Norðmenn eru einnig í 2. deild. Danir eru sterkastir í 3. deild og bætast væntanlega við í deildina. Hvorki Finnar né Færeyingar taka þátt í ólympíumótinu í netskák. Flestir sterkustu skákmenn heims taka þátt í ólympíumótinu.
Á mótinu tefla blönduð lið. Í hverri umferð tefla sex skákmenn frá hverri þjóð.
- Opinn flokkur (2)
- Kvennaflokkur (2)
- U20 – opinn flokkur (1)
- U20 – kvennaflokkur (1)
Jafnmargir varamenn frá hverri þjóð.
Landslið Íslands á fyrsta (og kannski eina?) Ólympíuskákmóti í netskák skipa:
| Flokkur | Aðalmenn | Varamenn |
| Opinn flokkur | GM Jóhann Hjartarson (2525) | GM Bragi Þorfinnsson (2427) |
| Opinn flokkur | IM Guðmundur Kjartansson (2466) | GM Helgi Áss Grétarsson (2401) |
| Kvennaflokkur | WGM Lenka Ptácníková (2117) | Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (1935) |
| Kvennaflokkur | WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (2009) | WIM Lisseth Acevedo Mendez (1845) |
| U20 – Opinn | FM Vignir Vatnar Stefánsson (2301) | Birkir Ísak Jóhannsson (2146) |
| U20 – stúlkur | Batel Goitom Haile (1587) | Iðunn Helgadóttir (1364) |
Nánari upplýsingar um Ólympíuskákmótið í netskák má finna á heimasíðu FIDE.

















