EM ungmenna í netskák hefst í dag. 19 Íslendingar taka þátt í alls sex aldursflokkum. Teflt er á Tornelo-skákþjóninum og koma íslensku ungmennin saman í húsnæði Skákskóla Íslands. Alls taka um 900 ungmenni þátt í mótinu.
Þátttakendur Íslands

Umferð dagsins hefst kl. 14 og hægt er að fylgjast með skákum íslensku ungmennina á ýmsum stöðvum!
Tefld er kappskák og er mótið reiknað til skákstiga. Í fyrsta skipti þar sem Íslendingar tefla netskák sem reiknuð er til alþjóðlegra skákstiga.
Daglegur fréttaflutningur verður frá mótinu á Skák.is.
- Auglýsing -
















