Fimm skákmenn eru efstir og jafnir eftir sviptingasama umferð á Íslandsmótinu í skák. Efstu menn hafa tvo vinninga af þremur mögulegum.
Fyrsta skákin til að klárast var skák Símons Þórhallssonar gegn Guðmundi Kjartanssyni. Guðmundur fékk snemma vænlegt tafl með 3 peð fyrir mann en menn hvíts stóðu frekar illa.
Guðmundur náði síðan að láta frípeðin á drottningarvæng telja.
Þeir félagar Vignir og Hilmir þekkja hvorn annan mjög vel enda voru þeir saman á skákmóti í Serbíu nýlega. Þeir tefldu samt langa baráttu skák en hvorugur var í dauðafæri á að landa sigrinum í dag.
Héðinn og Þröstur tefldu hörkuskák. Þröstur er mjög reyndur í drottningarbragðinu á svart og hann gaf engin færi á sér, átti jafnvel sinn séns á að grípa frumkvæðið líka ef eitthvað var.
Alexander og Bragi tefldi Kalashnikov. Bragi fékk langtíma „eign“ í peðameirihluta á drottningarvæng sem var það sem taldi í endann.
Skák dagsins var tvímælalaust á milli þeirra Hjörvars og Hannesar. Hjörvar tefldi traust og fékk stöðu sem hann hefði átt að geta pressað nokkuð áhættulaust.
Líkt og í fyrri umferðum virtist eitthvað fara úrskeiðis í úrvinnslunni og Hjörvar valdi ekki rétt endatafl. Fóru mál svo illa að Hannes sat allt í einu uppi með kolunnið tafl. Lukkudísirnar voru ekki alveg búnar að ákveða hvar best væri að vera og enduðu á að vera á bandi Hjörvars eftir að Hannes sleppti að drepa riddara Hjörvars á e2.
Miklar sviptingar, sérstaklega í skák Hjörvars og Hannesar og því alls fimm skákmenn jafnir sem er helmingur af keppendum…og allir komnir á blað!
Í fimmtu umferð mætast Bragi og Héðinn sem verður toppslagur umferðarinnar. Umferðin hefst klukkan 14:00.

Skákirnar eru sýndar þráðbeint á netinu. Skákvarp Ingvars Þór Jóhannessonar hefst að jafnaði rúmlega klukkustund eftir upphaf umferðar.
Einnig er hægt að fylgjast með á Facebook-síðu íslenskra skákmanna.
Skákvarp 3. umferðar:
















