Jóhanna, Guðrún, Iðunn, Halla og Ingvar við upphaf ólympíumótsins.

Íslensku sveitirnar á Ólympíuskákmótinu í Búdapest unnu sigra í sínum viðureignum í fyrstu umferð.

Sveitin í opnum flokki lagði Miðbaugs-Gíneu 3-1. Miðbaugsmenn börðust vel. Guðmundur Kjartansson tapaði. Hann lék illa af sér í miðtaflinu og andstæðingur hans sleppti ekki af honum tökunum eftir það. Aðrir unnu en máttu hafa fyrir hlutunum.

Sveitin í opnum flokki ásamt Helga liðsstjóra – Mynd: HHS

Vignir Vatnar Stefánsson hvíldi.

Sveitin í kvennaflokki ásamt Ingvari liðsstjóra – Mynd: IÞJ

Sveitin í kvennaflokki vann sannfærandi sigur á Bresku jómfrúareyjunum, 4-0. Mikill getumunur var á liðunum. Nýliðarnir Iðunn Helgadóttir og Guðrún Fanney Briem fengu eldskírn í viðureigninni og fara vel af stað með þægilegum sigrum. Lenka Ptácníková hvíldi.

Heimasíða mótsins

- Auglýsing -