Íslensku sveitirnar á Ólympíuskákmótinu töpuðu báðar sínum viðureignum í 8. umferð.
Sveitin í opnum flokki tapaði 1,5 – 2,5 gegn Túrkmenistan. Hannes Hlífar vann sína skák og Hilmir Freyr gerði jafntefli en aðrir töpuðu.
Sveitin í kvennaflokki tapaði 1 – 3 gegn Tékklandi. Jóhanna Björg og Guðrún Fanney gerðu jafntefli en aðrar töpuðu.
Níunda umferð mótsins hefst kl. 13:15 að íslenskum tíma á morgun, föstudag.
- Auglýsing -