Miðvikudaginn 18. mars kl. 19:30 verður 2 klukkutíma “Arena” hraðskákmót.
Arena mót á Chess.com fara þannig fram að parað er um leið og keppendur ljúka skákum sínum (velji þeir að smella á “next game”). Það er hægt að taka sér pásu með því að bíða með að smella á next game.
Í þessum mótum er enginn umferðafjöldi, heldur gildir bara að vinna sem flestar skákir á þeim tíma sem mótið tekur. Mótsklukkan er stillt á 120 mínútur og lýkur mótinu þegar hún rennur út.
Til þess að flækja málið lítillega, þá eru bónusstig fyrir að vinna margar skákir í röð. Það getur því borgað sig að anda djúpt og reyna að vinna til að fá fleiri stig fyrir skákina, eða reyna að tefla hratt og ná sem flestum skákum.
Tengill: https://www.chess.com/live#r=169273
HVAÐ ÞARF AÐ GERA TIL AÐ TAKA ÞÁTT?
Nýliðar þurfa að ganga í hópinn https://www.chess.com/club/team-iceland á Chess.com áður en keppnin hefst.
Tengill á mótið sjálft er hér að ofan, en hann má einnig finna í “Tournaments” flipanum á Chess.com/live áður en mótið hefst.
NÆSTU MÓT
- Fimmtudaginn 19. mars kl. 19:30 – Hraðskákmót 5+2. Arena mót í 2 klukkutíma
Tengill: https://www.chess.com/live#r=169274















