Áskell Örn Kárason er meðal efstu manna þegar tefldar hafa verið fimm umferðir af ellefu á Evrópumóti öldunga 65 ára og eldri sem fram fer þessa dagana í Drammen í Noregi. Áskell gerði jafntefli við Svíann Nils-Gustaf Renman í fimmtu umferð og hafði þá unnið tvær skákir og gert þrjú jafntefli. Svíinn vann þetta mót í fyrra.
Með honum í opna flokknum teflir einnig Jóhannes Björn Lúðvíksson sem vakti mikla athygli í fyrstu umferð er hann gerði jafntefli við stigahæsta keppanda mótsins, Rússann Vladislav Vorotnikov. Jóhannes Björn er höfundur bókar sem var mjög umtöluð þegar hún kom út á níunda áratug síðustu aldar, Falið vald. Hann var einn af efnilegustu skákmönnum Íslands á árunum í kringum 1970 en hefur sáralítið teflt undanfarið. Þess vegna var nánast með ólíkindum, að hann skyldi ná jafntefli gegn svo öflugum skákmanni og það sem meira var – hann átt unnið tafl:
EM öldunga 2018, 1. umferð:
Jóhannes Björn – Vorotnikov
Eftir misheppnaða kóngssókn Rússans fyrr í skákinni stóð Jóhannes Björn uppi með unnið tafl í þessari stöðu. Hér er einfaldast að leika 36. De4! sem hótar hróknum á g6 og einnig að ná drottningaruppskiptum með 37. Dc4+. Jóhannes lék hinsvegar …
36. Hae1 … og eftir
36. … Hg5! 37. De4 Hca5 38. Dg6+ sættust keppendur á jafntefli þar sem hvítur verður að þráskáka.
Jóhannes hefur ekki náð að fylgja þessari góðu byrjun eftir en það er gaman að sjá hann aftur að tafli.
Eftir fimm umferðir var staða efstu manna í 65 ára flokknum:
1. Leif Ögaard (Noregi ) 4 ½ v. (af 5) 2. – 4. Stebbings ( Englandi ), Barle ( Slóveníu ) og Hedin ( Svíþjóð ) 4 v.
Áskell Örn var í 5.-17. sæti með 3 ½ vinning. Keppendur í flokki 65 +ára og eldri eru 66 talsins.
Í opna flokki 50 ára og eldri voru Svíarnir Holst og Blomström efstir með 4 ½ vinning. Sá síðarnendi vann Simen Agdestein í fimmtu umferð.
Sigurlaug Friðþjófsdóttir teflir í kvennaflokknum 50 ára og eldri. Þar eru keppendur níu talsins og Sigurlaug stigalægst og var með ½ vinning eftir fimm umferðir.
Þekktasta skákkona mótsins er án efa Nona Gaprindhasvili, heimsmeistari frá árunum 1962-1978, en hún kaus að tefla í opna flokknum og var jöfn Áskatli Erni eftir fimm umferðir.
Næst yngsti stórmeistari skáksögunnar
Indverjinn Praggnanandhaa er yngsti stórmeistari heims í dag en hann er aðeins 12 ára og tíu mánaða gamall. Nýlega birti vefsíða Chessbase lista yfir yngstu stórmeistara sögunnar og kennir þar ýmissa grasa. Bobby Fischer var yngsti stórmeistari skáksögunnar í 35 ár en hann var 15 ára gamall þegar hann var sæmdur titlinum er hann komst í hóp áskorenda á millisvæðamótinu í Portoroz árið 1958. Í dag er hann þó aðeins í 44 sæti en sá yngsti er áskorandinn úr síðasta heimsmeistaraeinvígi, Sergei Karjakin sem var 12 ára og sjö mánaða þegar hann hafði uppfyllt öll skilyrði til að öðlast titilinn. Topp 10 listinn er svona:
1. Karjakin (Úkraína/Rússl.) 12 ára
2. Praggnanandhaa (Indland) 12 ára
3. Abdusatturov (Uzbekistan) 13 ára
4. Negi (Indland) 13 ára
5. Magnús Carlsen (Noregur) 13 ára
6. Wei (Kína) 13 ára
7. Bu (Kína) 13 ára
8. Rapport (Ungverjaland) 13 ára
9. Radjabov (Aserbadsjan) 14 ára
10. Ponomariov (Úkraína) 14 ára
Skákþættir Helga Ólafssonar í Morgunblaðinu birtast viku síðar á Skák.is. Þessi skákþáttur birtist 11. ágúst 2018.















