Guðmundur að tafli. Mynd: Fiona

Önnur umferð EM taflfélaga fór fram í Mayrhofen í Austurríki í dag. Víkingaklúbburinn vann i dag. Skákfélag Akureyrar gerði gott jafntefli við norska sveit. Taflfélag Reykjavíkur tapaði þar sem Guðmundur Kjartansson og Margeir Pétursson gerðu góð jafntefli. Skákdeild Fjölnis tapaði með minnsta mun. Taflfélag Garðabæjar tapaði í kvennaflokki.

Brosmildur Ingvar. Ekki jafn brosmildur yfir úrslitaþjónustunni.

Taflfélag Reykjavíkur tapaði 1-5 fyrir sterkri slóvanskri sveit. Guðmundur Kjartansson og Margeir Pétursson náðu góðum úrslitum gegn afar sterkum indverskum stórmeisturum.

Fjölnismenn töpuðu með minnsta mun.

Fjölnir tapaði með minnsta mun gegn svissneskri sveit. Thybo og Dagur Ragnarsson unnu.

Víkingar lögðu írska sveit sveit 4-2 að velli. Jóhann, Bragi og Davíð unnu.

Víkingar unnu í dag. Dúkarnir hins vegar eiginlega ekki boðlegir að mati ritstjóra.Hvað er hvíta peðið að gera á g4?

Jokko á fyrsta borði. Er þetta Carlsen á öðru borði?

Akureyringar gerðu gott 3-3 jafntefli gegn norskri sveit. Stefán Bergsson og Andri Freyr Björgvinsson unnu.

Taflfélag Garðabæjar sem tekur þátt í kvennaflokki tapaði 1-3 gegn franskri sveit. Guðlaug Þorsteinsdóttir vann.

Heimasíða mótsins

 

 

- Auglýsing -