MWH3+FR2
Skólastígur, 600 Akureyri
Ísland

Úrslit Landsmótsins í skólaskák fara fram laugardaginn 4. og 5. maí í Brekkuskóla á Akureyri. Úrslitin verða tefld í tólf manna flokkum þar sem allir tefla við alla.
Teflt er í þremur flokkum, 1.-4. bekkur, 5.-7. bekkur og 8.-10. bekkur.
Umhugsunartími: 15 mínútur á mann með 5 sekúndna viðbótartíma á leik. Mótin verða reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga.
Dagskrá:
- Laugardagurinn, 4. maí, 1.-5. umferð, Kl. 13:00 – u.þ.b. 17:00
- Sunnudagurinn, 5. maí, 6.-11. umferð, Kl. 11:00 – u.þ.b. 16:00
Verði keppendur jafnir í efsta sæti tefla þeir aukakeppni um titilinn með hraðskáktímamörkum. 5 3. Aukakeppni fer fram að lokinni verðlaunaafhendingu ef hægt er. Um önnur sæti gilda oddastig.
Verðlaun í elsta flokki:
- Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 80.000 kr.
- Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 50.000 kr.
- Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 20.000 kr.
Efsti keppandi af landsbyggð: Ferðastyrkur að verðmæti 20.000 kr.
Verðlaun í yngri flokkum
- Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 50.000 kr.
- Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 30.000 kr.
- Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 20.000 kr.
Efsti keppandi af landsbyggð: Ferðastyrkur að verðmæti 20.000 kr.
Aðeins er hægt að vinna til einna verðlauna.
Veitingasala er á skákstað. Engin posi en hægt er að greiða með reiðufé, aur-appinu eða með bankainnlögn.
Gisting fyrir þá sem vilja er í boði í Brekkuskóla. Þeir sem það kjósa er bent á að hafa samband við Áskel Örn Kárason, formann SA, í netfangið askell@simnet.is eða í símann 897 8055.
Engin þátttökugjöld. Hægt er að óska eftir ferðastyrk ef ferðalagið er meira en 500 km í bifreið.
Skáksamband Íslands mun bjóða keppendum upp á veglega máltíð á laugardagskvöldið.
Skáksamband Íslands og Skákfélag Akureyrar








