Daníel Helgason frá Green Diamond lék fyrsta leikinn fyrir Hjörvar. Róbert skákstjóri fylgist með.

Bræðurnir Helgi Áss (2377) og Andri Áss Grétarssynir (2186) er efstir og jafnir eftir fyrri dag úrslitakeppni Íslandsmótsins í Fischer-slembiskák. Bræðurnir hafa 3½ vinning eftir fjórar umferðir. Sigurbjörn Björnsson (2328) er þriðji með 3 vinninga og Íslandsmeistarinn í Fischer-skák, Hjörvar Steinn Grétarsson (2516)  er fjórði með 2½ vinning.


Í dag verða tefldar umferðir 5-9. Fjórir efstu eftir mótið komast í úrslitakeppni sem hefst svo í kjölfarið þar sem teflt er um há verðlaun í boði GREEN DIAMOND INTERNATIONAL FOOTWEAR.

Tíu efstu í undanrásunum sem tefldar voru á miðvikudagskvöldið á Chess.com fengu sæti í úrslitum.

Fjórir af tíu keppendum afþökkuðu hins vegar sæti í úrslitakeppninni. Davíð Kjartansson, Arnar Gunnarsson, Daði Ómarsson og Jón Viktor Gunnarsson. Mótshaldarar (CAD) buðu keppendum sem enduðu nr. 11 og 12 sæti (Davíð Kolka og Símon Þórhallsson) sæti en báðir afþökkuðu enda fyrirvarinn skammur.

Sigurður Bragi frá Green Diamond og Björn Þorfinnsson í upphafi skákar.

Mótshaldarar gripu til þess ráðs  að fara niður stigalistann til að velja varamenn og sæti þáðu stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson, Sigurbjörn Björnsson, Stephan Briem og Magnús Pálmi Örnólfsson.

Taflmennskan í dag hefst kl. 13: CAD-bræður verða með beinar lýsingar á Twitch og skákirnar í beinni í LiChess.

Dagskráin í dag

Laugardagur 2. des

5-9 umferð.

Leikar hefjast 13.00

Úrslit að loknu hefðbundnu 9 umferða móti þar sem fjórir efstu komast áfram. Verði tveir eða fleiri jafnir í 4. sæti verður til teflt um sætið.

  • 1.-4. sæti
  • 2.-3. sæti

Þriggja skáka einvígi – þar sem sá var hærri í mótinu fær tvo hvíta.

Sama fyrirkomulag fyrir gullið og bronsið.

Teflt verður á Center Hotels Plaza (Aðalstræti)

Verðlaun í aðalmótinu verða:

  • 1. 165.000
  • 2. 110.000
  • 3. 55.000

 

 

- Auglýsing -