Hjörvar og Vignir eru á 2. og 1. borði Ólympíuliðsins.

Eftirfarandi tilkynning hefur borist frá Helga Ólafsson, liðsstjóra Ólmpíuliðsins í opnum flokki.

Sem kunnugt er hefur val mitt á landsliði Íslands sem tekur þátt í Opna flokki Ólympíumótsins í Budapest í næsta mánuði legið fyrir um nokkurt skeið. Nú er kominn tími til að opinbera borðaröð liðsins og verður hún með þessum hætti:

  1. borð: GM Vignir Vatnar Stefánsson (2526)
  2. borð: GM Hjörvar Steinn Grétarsson (2498)
  3. borð: GM Guðmundur Kjartansson (2474)
  4. borð: GM Helgi Áss Grétarsson (2454)
  1. varamaður: IM Hilmir Freyr Heimisson (2391)

Með bestu kveðju,

Helgi Ólafsson, landsliðseinvaldur/liðsstjóri.

Ingvar Þór Jóhannesson, liðsstjóri kvennaliðsins hefur einnig ákveðið borðaröð kvennalandsliðið. Það skipa í borðaröð:

  1. WIM Olga Prudnykova (2268)
  2. WGM Lenka Ptácníková (2086)
  3. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (2013)
  4. WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (1938)
  5. Iðunn Helgadóttir (1837)

 

 

- Auglýsing -