Síminn Invitational 2026

    0
    882
    Hvenær:
    18. janúar, 2026 @ 19:00 – 21:30
    2026-01-18T19:00:00-01:00
    2026-01-18T21:30:00-01:00
    Hvar:
    Arena
    Síminn Sport
    Tengiliður:
    RÍSÍ og SÍ
    Síminn Invitational 2026 @ Arena

    Úrslit Síminn Invitational í netskák fara fram á sunnudagskvöldið kl. 19. Í úrslitum mætast stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson og hans fyrsti skákkennari, alþjóðlegi meistarinn, Björn Þorfinnsson. 

    Mótið er í umsjón Rafíþróttasambands Íslands í nánu samstarfi við Skáksamband Íslands. Beinar útsendingar verða á Símanum Sport. Aðrir styrktaraðilar eru Collab, Ljósleiðarinnn og Lengjan.

    Hægt er að fylgjast með á Sjónvarpi Símans eða á YouTube rás RÍSÍ eða Twitch Rási RÍSÍ

    Skákskýringarnar verða í umsjón Björns Ívars og Ingvars Þórs.

    Viðureignirnar eru á Lengjunni.

    Halldór Ingi Kárason, Unnar Ingvarsson, Brynjar Bjarkason, Aron d og Halldór Breynjar Halldórsson eru efstir í Draumaliðsdeildinni. Staðan í Draumaliðsdeildinni.

    Í úrslitum verður 10 skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 5½ vinning.

    Verðlaun í aðalkeppninni

    1. 200.000 kr
    2. 100.000 kr.
    3.   25.000 kr
    4.   25.000 kr.
    - Auglýsing -