Sjöunda umferð Ólympíuskákmótsins í Samarkand var að ljúka hér í Úzbekistan. Íslensku liðin unnu bæði sigur í sínum viðureignum. Í opna flokknum hafði liðið nauman 2,5-1,5 sigur á S-Kóreu en kvennaliðið malaði Mozambique 3,5-0,5. Úzbekar gefa enn í á toppnum, hafa áfram fullu húsi og lögðu Kínverja 3-1 í dag sem eru frábær úrslit.
Opinn flokkur: Ísland – Suður-Kórea
Ísland var stigahærra á öllum borðum og fyrirfram hefði mátt búast við sigri í þessari viðureign en sama var á ferðinni og í síðustu viðureign fyrir frídag sem endaði 2-2 gegn Andorra. Hannes Hlífar hvíldi.
| Borðstig | Ísland | stig | S-Kórea | stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | GM Vignir Vatnar Stefánsson | 2531 | IM Ahn, Hongjin | 2328 |
| 2 | IM Hilmir Freyr Heimisson | 2342 | FM Huh, Isaak | 2324 |
| 3 | GM Jóhann Hjartarson | 2461 | FM Kwon, Sehyun | 2274 |
| 4 | GM Guðmundur Kjartansson | 2402 | Lee, Younggyu | 2055 |
Jóhanni varð ekki mikið ágengt gegn Petroffs-vörn Kwon á þriðja borði. Í 24. leik fékk sá S-kóreski hættulegt taktískt færi en náði ekki að nýta það. Staðan fjaraði fljótlega í jafntefli eftir það.
Guðmundur er að koma sterkur inn úrslitalega séð í seinni hlutann. Hann vann sinn þriðja sigur í röð og aftur með svörtu en fékk smá aðstoð þegar andstæðingur hans lék af sér manni í jafnteflislegu endatafli.
Byrjunin misheppnaðist eitthvað hjá Hilmi og fékk hann erfitt miðtafl sem hann náði ekki að vinna sig úr. Það kom ekkert hik á Huh sem tefldi vel og vann góðan sigur, staðan hér því orðin jöfn 1,5-1,5.
Vignir reyndist hetjan að þessu sinni. Hann virtist lengst af ekki hafa úr miklu að moða en náði að kreysta fram svíðing í endatafli og þar með svíðing í viðureigninni!
Ekki glæsilegasti sigurinn en við tókum hann!

Úzbekar hafa áfram fullt hús stiga en þeir tóku Kínverja 3-1 sem eru glæsileg úrslit. Indverjar gerðu sitt og lögðu England þrátt fyrir annað tap Sarin í röð. Líklegt að sá smávaxni verði settur á bekkinn í næstu umferð! Indverjar verða að treysta á að aðrar þjóðir taki stig af þeim.
Ísland hoppar upp í 9 stig og mætum við Ítalíu í næstu umferð.
Kvennaflokkur: Mozambique – Ísland
Ísland var stigahærra á öllum borðum. Hallgerður hvíldi.
| Borð | Mozambique | stig | Ísland | stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | WFM Vilhete, Vania Fausto Da T. | 1867 | WGM Lenka Ptácníková | 2082 |
| 2 | WCM Sitoe, Cheila Andre | 1748 | WFM Guðrún Fanney Briem | 1865 |
| 3 | WCM Castro, Neusa Aridas De | 1721 | WCM Iðunn Helgadóttir | 1869 |
| 4 | Naira Sinoia | 1559 | Hrund Hauksdóttir | 1817 |
Guðrún lagði sinn andstæðing að velli með nánast sömu taktík og á síðasta EM. Upp kom London-kerfið og Guðrún þurfti aðeins að rifja upp krefjandi teóríu sem gekk ekki alveg fullkomlega upp en á endanum kom styrkleikamunurinn í ljós!
Hrund missti gjörunnið tafl niður í jafntefli, svekkjandi úrslit miðað við gang mála í skákinni.
Lenka lagði Vilhete að velli, að einhverju leiti ósanngjarnt gagnvart Vilhete sem getur teflt ansi traust en hefur nú tapað þrisvar gegn Íslandi! Vilhete með hvítt fékk betra miðtafl en Lenka jafnaði taflið og tók yfir smátt og smátt.
Andstæðingur Iðunnar hafði þá egar beðið í vel rúmar 20 mínútur ca. mát í 2 leikjum. Iðunn vann auðveldan sigur og taflmennska hvíts á köflum kjánaleg sem var toppað með þessari bið í lokin sem fór eiginlega vel yfir velsæmismörk!
Fínn sigur en 4-0 hefði verið fínt til að fá í oddastiga-sparibaukinn.

Liðið hefur 8 stig í „hálfleik“ en Kazakar og Kínverjar eru ennþá í forystu eftir innbyrðis jafntefli.
Ólympíu-tenglar!
- Tengill sem á að virka í hverri umferð: Beinn tengill á skákir Íslendinga á 8by8verse
- Skákir á lichess (þarf að velja rétt umferð og flokk) : Lichess beint
- Opinber heimasíða mótsins: chessolympiad2026.fide.com
- Pörun og staða, opinn flokkur: chess-results.com – Open
- Pörun og staða, kvennaflokkur: chess-results.com – Women
- Bein útsending FIDE á YouTube: youtube.com/@FIDE_chess/streams
- Chess.com-síða mótsins: 2026 FIDE Chess Olympiad
- Íslenskar fréttir og viðtöl við farana: skak.is og flokkurinn Ólympíufarinn
- INSTAGRAM síða Skáksambandsins (Story o.f.l.) : Instagram
- Yfirlit á Wikipedia: 46th Chess Olympiad
















