Þriðja umferð úrvalsdeildar fór fram í dag og önnur í öðrum deildum. Heldur betur spennandi barátta framundan. Næsta umferð hefst kl. 17:30

Fjórða umferð úrvalsdeildar í beinni

Úrvalsdeild

KR-ingar héldu áfram sigurgöngu sinni í 3. umferð og unnu öruggan sigur á Íslandsmeisturum Taflfélags Vestmannaeyja. Leyfðu aðeins fjögur jafntefli og unnu fjórar skákir. KR-ingar eru efstir með fullt hús stiga.

Taflfélag Reykjavíkur unnu eins sigur á Taflfélagi Garðabæjar. Leyfðu einnig bara fjögur jafntefli.

Mest gekk á í viðureign Fjölnis og Breiðabliks. Það vakti óneitanlega athygli að Vignir Vatnar Stefánsson hvíldi hjá Breiðabliki í þessari mikilvægu viðureign. Það vakti einnig athygli að Héðni Steingrímssyni var stillt upp hjá Fjölni – en hann mun ekki vera staddur hérlendis. Í ljós kom að kom að þar áttu sér stað mistök, sambærileg þeim sem Breiðablik gerði í lokaumferðinni í fyrra. Héðni var stillt upp í stað annars skákmanns sem átti að tefla. Reglugerð keppinnar (10 gr.) heimilar ekki breytingu á birtri liðsuppstillingu og hófu því Fjölnismenn viðureignina 0-1. Þeir reyndust seigir og héldu jöfnu gegn Blikum en lengi var útlitið dökt.

Mótstafla

Úrvalsdeild á chess-results

1. deild

Víkingaklúbburinn fer með himinskautum og hafa unnið báðar sínar viðureignir 6-0. Skákfélag Akureyrar er einnig með fullt hús stiga. Sveitirnar mætast í kvöld. Sú viðureign gæti skipt sköpum.

2. deild

B-sveit SA er á toppnum með fullt hús stiga. Goðinn er í öðru sæti.

2.deild á chess-results

3. deild

SSON, SA-c og 64MB hafa fullt hús stiga eftir tvær umferðir. 3.deild á chess-results

4. deild

Haukar, Snæfellingar, TR-d, Mosfellingar og b-sveit Dímona hafa fullt hús stiga eftir tvær umferðir. Sennilega þær sveitir sem eiga eftir að berjast um sætin tvö í 3. deild.

Seinni umferð dagsins hefst kl. 17:30. Umferð morgundagsins hefst kl. 11.

- Auglýsing -