
Shakhriyar Mamedyarov er efstur á Norway Chess mótinu með 3½ stig eftir að hafa lagt Vishy Anand að velli í kappskákinni. Fabiano Caruana vann Maxime Vachier-Lagrave en öðrum skákum lauk með jafntefli og fóru í bráðabana. Heimsmeistaranum Magnúsi Carlsen tókst að bjarga tapaðri skák gegn Levon Aronian og vann svo bráðabanann.

Carlsen er í 2.-3. sæti með 3 stig ásamt Yu Yangvi.
Góða umfjöllun um aðra umferð má lesa á Chess.com.
Staðan eftir aðra umferð

Þriðja umferð hefst kl. 15 í dag. Carlsen mætir þá Grischuk en Mamdyarov teflir við Aronian.
Fyrirkomulag mótsins
Fyrirkomulag mótsins er afar óvenjulegt. Tímamörkin er miklu hraðari en hefðbundið er. Keppendur á 2 klukkustundir á alla skákina og 10 sekúndur á leik eftir 40 leiki. Tímastjórnun er því afar mikilvæg.
Sé niðurstaðan jafntefli niðurstaðan verður tefldur bráðabani (armageddon) þar sem teflt er með sömu litum og í kappskákinn. Hvítur fær 10 mínútur en svartur fær sjö mínútur. Viðbótartími (3 sekúndur) kemur eftir 60 leiki. Jafntefli telst sem sigur fyrir svartan.
Stigagjöf er sem hér segir:
- Sigur í kappskák: 2 stig
- Jafntefli í kappskák og sigur í bráðabana: 1,5 stig
- Jafntefli í kappskák og tap í bráðabana: 0,5 stig
- Tap í kappskák: 0 stig















