EM í netskák 2021 – undankeppni um sæti á heimsbikarmótinu

    0
    1066
    Hvenær:
    24. maí, 2021 @ 12:00 – 25. maí, 2021 @ 16:00
    2021-05-24T12:00:00+00:00
    2021-05-25T16:00:00+00:00
    Hvar:
    Tornelo
    Faxafen 12
    108 Reykjavík
    Ísland
    EM í netskák 2021 - undankeppni um sæti á heimsbikarmótinu @ Tornelo | Reykjavík | Ísland

    Heimsbikarmótið í skák fer fram í Sochi í Rússlandi í júlí-ágúst. Þegar er ljóst að Ísland á þar a.m.k. einn fulltrúa, Hjörvar Stein Grétarsson, sem ávann sér keppnisrétt með sigri í Íslandsbikarnum.

    Þann 24.-30. maí fer fram Evrópumótið í netskák. Á því eru í boði 36 sæti á Heimsbikarmótið.  Þar eru skráðir til leiks þrír íslenskir stórmeistarar; Héðinn Steingrímsson (2510), Guðmundur Kjartansson og Helgi Áss Grétarsson (2441). Allir íslensku keppendurnir tefla í húsnæði Skáksamband Ísland undir eftirliti myndavéla og skákstjóra.

    Teflt er eftir útsláttarfyrirkomulagi og til að komast á heimsbikarmótið þarf sigur í þremur tveggja skáka einvígum þar sem tefld er kappskák. Verði staðan 1-1 verður teflt til þrautar með styttri umhugsunartíma.

    Í fyrsta einvíginu, sem fram fer 24. og 25. maí, verða viðureignir íslensku keppendanna sem hér segir:

    • GM Héðinn Steingrímsson (2510) – GM Maksim Chigaev (2631), Rússlandi
    • GM Helgi Áss Grétarsson (2441) – GM Aleksandr Shimanov (2597), Rússlandi
    • GM Guðmundur Kjartansson (2500) – GM Stelios Halkias (2567), Grikklandi

    Nánar um mótið þegar nær dregur.

    Pörunartré mótsins

    Mótsreglur mótsins

    - Auglýsing -