Setja í mitt dagatal
Hvenær:
24. júní, 2021 @ 15:00 – 18:00
2021-06-24T15:00:00+00:00
2021-06-24T18:00:00+00:00
Hvar:
Taflfélag Reykjavíkur
Faxafen 12
108 Reykjavík
Ísland
Faxafen 12
108 Reykjavík
Ísland

Úrslitaeinvígi Jóhönnu Bjargar Jóhannsdóttur og Lenku Ptácníková um Íslandsmeistaratitil kvenna er fram fimmtudaginn 24. júní nk. Eins og kunnugt er enduðu þeir jafnar í efsta sæti mótsins með 5,5 vinning í sex skákum.
Í úrslitakeppninni er notast við sama fyrirkomulag og í Íslandsbikarnum.
- Tefldar eru tvær atskákir, 25+10
- Ef jafnt verða tefldar tvær atskákir, 10+10
- Ef enn jafnt, verða tefldar tvær hraðskákir, 5+3
- Ef enn jafnt, þá tefld bráðabanaskák þar sem hvítur fær 5 mínútur á móti 4 mínútum svarts. Tvær sekúndur í viðbótartíma eftir 60 leiki. Svörtum dugar jafntefli til sigurs.
Að sjálfsögðu verður einvígið í beinni lýsingu í Skákvarpinu.
Verður teflt í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12.
- Auglýsing -











