Landsmótið í skólaskák 2022 – undankeppni

    0
    641
    Hvenær:
    19. maí, 2022 @ 18:30 – 20:00
    2022-05-19T18:30:00+00:00
    2022-05-19T20:00:00+00:00
    Hvar:
    Chess.com
    Gjald:
    Ókeypis
    Landsmótið í skólaskák 2022 - undankeppni @ Chess.com

    Landsmótið í skólaskák fer fram með óvenjulegu sniði í ár. Um er að ræða tilraun til eins árs.

    Undankeppni fer fram, fimmtudaginn, 19. maí á Chess.com. Úrslitakeppnin fer fram helgina, 28. og 29. maí, við glæsilegar aðstæður í Siglingaklúbbi Kópavogs.

    UNDANKEPPNI Á CHESS.COM

    Undankeppni á chess.com fer fram fimmtudaginn 19. maí og hefst kl. 18:30.

    Teflt er í einu móti þar sem keppt er efstu sætin í tveimur flokkum.

    Yngri flokkur 1.–7. bekkur og eldri flokkur 8.–10. bekkur. Mótið er opið öllum krökkum sem eru í grunnskóla.

    Tefldar verða níu umferðir. Oddastigaútreikningur Chess.com gildir séu keppendur jafnir.

    Umhugsunartími: Fjórar mínútur á skákina með tveimur viðbótarsekúndum á leik.

    Skráning

    • Vera í hópnum skólanetskák á Chess.com. https://www.chess.com/club/skolanetskakÞeir sem ekki eru meðlimir þurfa að skrá sig í hópinn fyrir mót.
    • Skrá sig í sjálft mótið á Chess.com: https://www.chess.com/play/tournament/3115430. Opnað er fyrir skráningu klukkutíma fyrir mót. Nauðsynlegt er að mæta stundvíslega.
    • Æskilegt er að keppendur skrái sig einnig í meðfylgjandi form til að mótshaldarar hafi upplýsingar um alla keppendur: https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSdJBPdA9iNLjsbm6HI-O_TQ32S4pbMj4l9c7NjhhS8on0-kFg/viewform

    ÚRSLITAKEPPNIN

    Úr undankeppninni úr hvorum flokki komast:

    • Fimm efstu frá höfuðborgarsvæðinu.
    • Þrír efstu af landsbyggðinni. Landsbyggðarkeppendur fá fararstyrk til að taka þátt í úrslitakeppninni. Landsbyggðin telst svæðið utan stór-höfuðborgarsvæðisins.
    • Efsta stúlkan
    • Boðssæti. Þegar boðssæti er úthlutað er sérstaklega litið til kynja sjónarmiða sem og árangurs þeirra sem búa langt frá virkum skákfélögum. Æskulýðsnefnd velur hver fær boðssæti
    • Ef kalla þarf til varamenn velur æskulýðsnefnd þá. 

    ÚRSLIT LANDSMÓTS

    Úrslit fara fram 28.-29.  maí við glæsilegar aðstæður í húsnæði Siglingaklúbb Kópavogs að Naustavör 14. Úrslitin verða tefld í tíu manna flokkum þar sem allir tefla við alla, tíu keppendur í yngri flokki (1.-7. bekkur) og tíu keppendur í eldri flokki (8.-10. bekkur).

    Umhugsunartími: 15 mínútur á mann með 5 sekúndna viðbótartíma á leik.

    Dagskrá: Laugardagur 12:00 –

    Sunnudagur 12:00 –

    Verðlaun í eldri flokki:

    1. Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 80.000 kr.
    2. Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 50.000 kr.
    3. Inneign hjá Skákbúðinni að verðmæti 20.000 kr.

    Efsti keppandi af landsbyggð: Inneign hjá Skákbúðinni að verðmæti 20.000 kr.

    Verðlaun í yngri flokki:

    1. Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 50.000 kr.
    2. Ferðastyrkur á mót erlendis að verðmæti 30.000 kr.
    3. Inneign hjá Skákbúðinni að verðmæti 20.000 kr.

    Efsti keppandi af landsbyggð: Inneign hjá Skákbúðinni að verðmæti 20.000 kr.

    - Auglýsing -