Íslandsmót ungmenna fer fram laugardaginn 13. október í Rimaskóla. Mótið hefst kl. 11 Teflt er í fimm aldursflokkum. Krýndir verða 10 Íslandsmeistarar – efsti strákur og efsta stelpa í öllum flokkunum fimm.
Afar góð verðlaun verða. Sigurvegari hvers flokks fær frí þátttökugjöld á GAMMA Reykjavíkurskákmótið 2019. Í happdrættisvinningum verða meðal annars Blutooth-hátalarar fá Heimilstækjum og úttekir í Dominos!
Allir með!
8 ára og yngri (f. 2010 og síðar)
Teflt verður sér flokkum fyrir drengi og stúlkur. Tefldar verða sjö umferðir. Umhugsunartími: 7 + 3 mínútur.
9-10 ára (f. 2008 og 2009)
Teflt verður sér flokkum fyrir drengi og stúlkur. Tefldar verða sjö umferðir. Umhugsunartími: 7 + 3 mínútur.
11–12 ára (f. 2006 og 2007)
Stefnt að því að tefla í sérflokkum fyrir drengi og stúlkur. Verði þátttaka ekki næg kunna flokkarnir að verða sameinaðir. Mögulegt er einnig að stúlknaflokkurinn verði sameinaður öðrum stúlknaflokkum (þá eldri).
Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 10 + 2.
13–14 ára (f. 2004 og 2005)
Teflt verður í sameinuðum flokki stúlkna og stráka. Mögulegt er einnig að stúlknaflokkurinn verði sameinaður öðrum stúlknaflokkum.
Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 10 + 5.
15–16 ára (f. 2002 og 2003)
Teflt verður í sameinuðum flokki stúlkna og stráka. Mögulegt er einnig að stúlknaflokkurinn verði sameinaður öðrum stúlknaflokkum.
Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 10 + 5.
Skráning og greiðsla þátttökugjalda
Skráning fyrir alla flokka fer fram á www.skak.is (guli kassinn til hægri).
Tekið verður við þátttökugjöldum og staðfestingu á mætingu frá 10:20 – 10:50. Þeir keppendur sem mæta eftir 10:50 geta misst sæti sitt í mótinu.
Þátttökugjald er krónur 1.500 og greiðist með reiðufé við staðfestingu á mætingu. Systkini borga aldrei meira en 2.500 kr. samtals. Hægt er jafnframt að greiða í gegnum netbanka fyrir mót inn á reikning 101-26-12763, kt. 580269-5409. Vinsamlegast látið nafn keppenda koma fram í skýringu og sendið kvittun á skaksamband@skaksamband.is.
Upplýsingar um þegar skráða keppendur má finna hér.
Verðlaun
Verði tveir eða fleiri keppendur jafnir í verðlaunasætum gilda mótstig* (tie break).
Verðlaunaafhending fer fram að keppni lokinni í hverjum flokki.
Þrír efstu í öllum flokkum fá verðlaunabikar.
Allir Íslandsmeistararnir fá frí þátttökugjöld á GAMMA Reykjavíkurskákmótið 2019.
Allir keppendur verða leystir út með smá glaðningi.
Happdrætti verður í lok hvers flokk þar sem meðal annars kunna heppnir keppenda að fá t.d. bíómiða eða pizzur.
Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskák- eða hraðskákstiga eftir því sem við á.
*Nánar um mótsstig
Allir við alla: 1. Sonneborn-Berger, 2. Innbyrðis úrslit, 3. Fjöldi sigra
Opnir flokkar: 1. Buchols (-1), 2. Buchols, 3. Innbyrðis úrslit, 4. Sonneborn-Berger 5. Fjöldi sigra