Þriðja umferð Íslandsmóts kvenna fór fram. Lenka Ptácníková (2099) og Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (2033) eru efstar og jafnar með 2½ vinning. Lenka vann Lisseth Acevedo Mendez (1849) en Jóhanna gerði jafntefli við Sigríði Björg Helgadóttur (1682). Liss er í 3.-4. sæti með 1½ vinning þrátt fyrir tapið ásamt Tinnu Kristínu Finnbogadóttur (1838) sem vann Guðlaugu Þorsteinsdóttur (1994). Hrund Hauksdóttir (1804) vann svo Sigurlaugu. Friðþjófsdóttur (1690).

Mótinu er framhaldið með tveimur umferðum. Sú fyrri hefst kl. 10 og sú síðari kl. 16.
Skákir dagsins

Landsliðsflokkur kvenna á Chess-Results.
Batel Goitom Haile (1559) og Guðrún Fanney Briem (1209) eru efstar í áskorendaflokki kvenna með fullt hús. Taflmennskunni í flokknum lýkur í dag. Verðlaunafhending fer fram fyrir lokaumferðina ílandsliðsflokki á þriðjudaginn kl. 18.
Áskorendaflokkur kvenna á Chess-Results.
Mótið er haldið semeiginlega af Skáksambandinu og Taflfélagi Garðabæjar sem fagnar 40 ára afmæli í ár.








