Stjórn SÍ var með stjórnarfund á Zoom, þriðjudaginn 1. september sl. Fundargerðir SÍ og þar á meðal nýjustu fundargerðina, má nálgast hér.
Í gær var eftirfarandi upplýsingapóstur sendur til aðildarfélaga SÍ.
—————
Stjórn SÍ hittast á stjórnarfundi í gær.
Íslandsmót skákfélaga 2019-21
Síðari hluta Íslandsmóts skákfélaga sem hófst í október 2019 hefur verið frestað vegna Covid-19. Keppnistímabilið verði því að þessu sinni 2019-21. Stefnt er á síðari hlutinn fari fram 5.-7. mars 2021.
Önnur dagskrá SÍ haustið 2021
Vonir eru til að mótahald hérlendis verði sem mest hefðbundið á komandi starfsári að Íslandsmóti skákfélaga í haust undanskildu.
- Meistaramót Skákskólans (U15) fer fram 5. og 6. september í Viðey. Skráningarfrestur rennur út á morgun [í dag!] kl. 20. Minnt er á að mótið er að hluti til undankeppni fyrir EM ungmenna í netskák.
- EM ungmenna í netskák fer fram 18.-20. september. Um það bil 20 íslenskir fulltrúar taka þátt. SÍ leggur áherslu á góða umgjörð og stefnt á beinar lýsingar eins og á Skákþingi Íslands.
- Íslandsmót ungmenna haldið 17. október. Félögum stendur til boða að taka mótshaldið að sér. SÍ leggur fram verðlaun en félögin fá þátttökugjöldin. Ef félög hafa áhuga á að halda mótið þarf að hafa samband við skrifstofu SÍ eigi síðar en 17. september nk.
- Íslandsmót unglingasveita fer fram 31. október – væntanlega í umsjón Taflfélags Garðabæjar
- Ekki eru komnar dagsetningar á Unglingameistaramót Íslands (u22) sem jafnframt verður Meistaramót Skákskólans fyrir eldri nemendur né Íslandsmót öldunga. Staðan á þessum mótum verður tekin á næstu vikum.
- Friðriksmót Landsbankans – Íslandsmótið í hraðskák og Íslandsmót í atskák eru í dagskrá í desember. Það er ekki útilokað að þau mót færist framar í starfsárið ef góð tækifæri fyrir mótunum myndast.
Sóttvarnarreglur SÍ
Skáksamband Íslands hefur fengið undanþágu fyrir sig og aðildarfélög sín fyrir skákstarfi frá heilbrigðisráðuneytinu. Sóttvarnarreglur SÍ má finna hér: https://skak.is/2020/08/24/sottvarnareglur-skaksambands-islands-vegna-covid-19/. Aðildarfélög eru beðin um virða þessa reglur.
Starfsnefndir
Stjórn SÍ hefur skipað nefndir starfsárið 2020-21. Þær má finna hér: https://skak.is/skaksamband/um-ssi/nefndir-og-rad/
Kveðja,
Stjórn SÍ









