Aleksandr vann áskorendaflokkinn 2022 og tefldi í landsliðsflokki 2023 með góðum árangri.

Áskorendaflokkur Íslandsmótsins í skák (Skákþings Íslands) fer fram við í skákhöll Faxafeni 12 26. ágúst – 3. september. Áskorendaflokkur er opinn öllum.

Verðlaun

  1. 100.000 kr.
  2.   60.000 kr.
  3.   40.000 kr

Verðlaun skiptast eftir Hort-kerfi séu menn efstir í verðlaunasætum í áskorendaflokki. Tvö efstu sætin gefa keppnisrétt í landsliðsflokki árið 2024. Oddastigaútreikningur* ræður lokaröð sæta.

Umferðartafla

  1. Laugardagurinn, 26. ágúst kl. 13:00
  2. Sunnudagurinn, 27. ágúst, kl 13:00
  3. Mánudagurinn, 28. ágúst, kl. 18:00
  4. Þriðjudagurinn, 29. ágúst, kl. 18:00
  5. Miðvikudagurinn, 30. ágúst, kl. 18:00
  6. Fimmtudagurinn, 31. ágúst, kl. 18:00
  7. Föstudagurinn, 1. september, kl. 18:00
  8. Laugardagurinn, 2. september, kl. 13:00
  9. Sunnudagurinn, 3. september, kl. 13:00

Þátttökugjöld

Þátttökugjöld eru 10.000 kr. Unglingar 16 ára og yngri (2007 og síðar) fá 50% afslátt. Titilhafar aðrir en CM/WCM fá frí þátttökugjöld.

Skráning

Skráning fer eingöngu fram á gula kassanum á Skák.is. Ekki verður hægt að skrá sig til leiks á skákstað. Skráningarfrestur rennur út fimmtudaginn, 24. ágúst kl. 23:59. Þátttökugjöld skal leggja inn á reikning 101-26-12763, kt. 580269-5409.

  • Skráningarform
  • Þegar skráðir keppendur

Tímamörk

90 mínútur + 15 mínútur eftir 40 leiki. 30 sekúnda viðbótartími eftir hvern leik.

Skákstjórn

Yfirdómari mótsins veður IA Róbert Lagerman.

Yfirsetur

Hægt er að taka tvær yfirsetur í umferðum 1-7 og fá fyrir hana hálfan vinning. Óska þarf eftir yfirsetunni fyrir lok umferðarinnar á undan á sannarlegan hátt.

*Oddastig

  • Flestar tefldar skákir
  • Bucholz -1
  • Bucholz 
  • Sonnoborn-Berger
  • Innbyrðis úrslit
  • Hlutkesti