Dagur Ragnarsson (2391) tekur þátt í alþjóðlegu lokuðu „túrbó-móti“ í Montreal í Kanada 31. júlí – 4. ágúst sl.
Ekki vel hjá Degi í gær. Hálfur vinningur kom í hús í umferðunum tveim. Dagur hefur 4 vinninga eftir 7 umferðir. Mótinu lýkur með tveim umferðum í dag.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 14 og 19:30)
Summer Prague Open
Lenka Ptácníková (2089) og Sigurður Ingason (1796) taka þátt í opnum móti í Prag dagana 2. -9. ágúst.
Lenka gerði jafntefli í annarri umferð en Sigurður tapaði. Lenka hefur 1 vinning en Sigurður er ekki kominn á blað. Tvær umferðir fara fram í dag.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 13)
Berlin Open
Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir (1682) tekur þátt í alþjóðlegu sjö umferða móti í Berlín dagana 1.-5. ágúst.
Í gær fóru fram tvær umferðir. Sigurlaug hlaut hálfan vinning í þeim tveim og hefur 2 vinninga eftir 6 umferðir
Split Open
Dagana 3.-11. ágúst fer fram alþjóðlega mótið Split Open í Króatíu. Helgi Pétur Gunnarsson (1740), Páll Þórsson (1725) og Iðunn Helgadóttir (1117) taka þátt.
Þau töpuðu öll í fyrstu umferð. Önnur umferð fer fram í dag.
















