Skáksamband Íslands í samvinnu við Skákskóla Íslands hefur ákveðið að taka þátt í EM ungmenna í netskák sem fram fer á 18.-20. september nk.

Teflt er í fjórum aldursflokkum, u12, u14, u16 og u18 í opnum flokki og í stelpuflokki – alls átta flokkum. Hver þjóð getur sent 3 keppendur í hvern flokk – alls 24 keppendur.

Íslensku keppendurnir verða valdir í september-byrjun. Höfð verða til hliðsjónar kappskákstig 1. september auk þess sem tekið verður tillit til árangurs á þá nýloknum áskorendaflokki Íslandsmótsins í skák sem lýkur 30. ágúst

Íslensku keppendurnir munu tefla í húsakynnum Skákskóla Íslands.

Nánari upplýsingar um mótið má finna hér: https://www.europechess.org/european-online-youth-individual-team-chess-championships-2020-regulations/

- Auglýsing -