Menningarfélgið Miðbæjarskák, í góðu samstarfi með Snooker og Pool Lágmúla, heldur skákmót sunnudaginn 22. maí næstkomandi klukkan 13: Þunnudagsmót! Tefldar verða 9. umferðir með tímamörkunum 3+2. Mótið er reiknað til hraðskákstiga. Í hléi verður Pub Quiz. Gera má ráð fyrir að mótahaldið standi til ca. 16. Snooker og Pool er til húsa í Lágmúla 5.
Þátttökugjöld: 1000 krónur. Þetta gildir fyrir alla þátttakendur.
Veitt verða verðlaun fyrir fyrsta, annað og þriðja sæti. Verðlaunasjóður verður upp á allavega 30.000 krónur.
Snooker og Pool bjóða upp á afslætti á veitingum og köldum á meðan mótinu stendur.
Skráning í mótið fer í gegnum skráningarform, en skráning miðar við 30 manns. Mótshaldarar mæla með að keppendur mæti tímanlega til að staðfesta skráningu á skákstað.
Nokkurt hlé hefur verið á mótahaldi Miðbæjarskákar undanfarið. Fyrir áhugasama, þá er hægt að kynna sér starfsemi Miðbæjarskák í þessum pistli, um starfsárin 2018-2020.