FIDE-meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson vann sigur á KR-hraðskákmótinu á Chess.com í gær. Upp komu viss tæknivandamál og voru aðeins 8 umferðir tefldar en ekki níu. Lokastaðan þarf því ekki að vera fullkomlega rétt.

Samkvæmt lokastöðunni á Chess.com varð FIDE-meistarinn Róbert Lagerman annar og Batel Goitom Haile varð í þriðja sæti. Guðmundur Gíslason virðist hafa verið fórnarlamb þessarar bilunar og er aðeins skráður í 22. sæti en var með 7 vinninga og ætti væntanlega með réttu að vera skráður í annað sæti.
Röð efstu manna
- FM Vignir Vatnar Stefánsson 8 v.
- FM/IA/FT/IO Róbert Lagerman 6,5 v.
- Batel Goitom Haile 6 v.
- CM Halldór Brynjar Halldórsson 6 v.
- Tómas Veigar Sigurðarson 5,5 v.
- FM Halldór Grétar Einarsson 5 v.
- WGM Lenka Ptácníková 5 v.
- JMackieqpr 5 v.
- Halldór Pálsson 5 v.
- Hrafn Arnarsson 5 v.
- Jon Baldur L´Orange 5 v.
Sóknin heldur áfram í kvöld þegar Þriðjudagsmót TR fer fram.
- Auglýsing -














