Ólympíuskákmótið hefst 29. júlí í Chennai á Indlandi. Ísland sendir lið í opnum flokki sem og kvennaflokki.

Fram að móti munum við fjalla um ólympíufarana – einn á dag!

Við byrjum á Lisseth Acevedo Méndez sem teflir á sínu fyrsta ólympíuskákmóti í raunheimum fyrir Íslands hönd.

Nafn

LISSETH ACEVEDO MÉNDEZ

Félag

FJÖLNIR

Aldur

28

Uppáhaldsskákmaður og skákkona?

Shakhiriyar Mamedyarov og Judit Polgar

Hvernig er þínum undirbúningi (skáklegum, andlegum, líkamlegum) háttað fyrir Ólympíumótið nú? 

Ég byrjaði að undirbúa mig fyrir ÓL 1. maí. Ég hef til dæmis verið í mjög góðu prógrammi hjá Yasser Quesada frá Kúbu og öðru hjá Juan Rohl frá Venesúela. Ég hef einnig verið að vinna í sjálfstrausti og andlegu hliðinni meðfram skákundirbúningi. Ég á 5 ára strák og að sinna honum hefur coverað líkamsræktina hjá mér.

Hvað eiga Indverjar marga stórmeistara? Hér er Google og öll önnur hjálpartæki bönnuð! 

Hmm, ég segi 80 GM

Hversu oft hefur þú farið á Ólympíuskákmót?

4 sinnum og 1 ólympíumót á netinu 

Mun ManU ná meistaradeildarsæti án Christano Ronaldo?

Nei

Hverja telur þú líklegasta til sigurs á Ólympíuskákmótinu í opnum og kvennaflokki?

USA og Ukraine 

Hvað er það síðasta sem þú horfðir á Netflix (eða annarri sjónvarpsveitu)?

Iron Chef: Quest for an Iron Legend. 

Mun Carlsen tefla heimsmeistaraeinvígi við Nepo á næsta ári?

Hann teflir ekki.

Minnistæðasta skák á Ólympíuskákmóti:

Fyrsta skák sem ég vann á ólympíumóti.

Hvítur á leik.

 

Hvernig finnst þér indverskur matur?

Góður – Hef samt bara smakkað Tikka Masala og Chana Masala.

Hverjum spáir þú sigri í forsetakosningum FIDE?  

Dvorkovich – Anand

Þekktasti Indverjinn sem þú veist um sem ekki er skákmaður?

Priyanka Chopra Jonas.

Með hverjum þremur (lífs eða lifnum) skákmönnum myndir þú vilja eiga kvöldmáltíð með og af hverju?

Jose Raúl Capablanca, Robert James Fischer og Magnus Carlsen. Þeir eru allir snillingar en mjög ólíkir, mig langar að sjá hvernig samspilið á milli þeirra yrði.

Ólympíufararnir

  • GM Hjörvar Steinn Grétarsson (opinn)
  • GM Hannes Hlífar Stefánsson (opinn)
  • GM Helgi Áss Grétarsson (opinn)
  • IM Vignir Vatnar Stefánsson (opinn)
  • GM Guðmundur Kjartansson (opinn)
  • WGM Lenka Ptácníková (kvenna)
  • Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (kvenna)
  • WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (kvenna)
  • Tinna Kristín Finnbogadóttir (kvenna)
  • WIM Lisseth Acevedo Méndez (kvenna)
  • GM Margeir Pétursson (liðsstjóri)
  • FM Ingvar Þór Jóhannesson (liðsstjóri)
  • IA Omar Salama (skákstjóri)
  • Gunnar Björnsson (FIDE-dindill)
- Auglýsing -