Ólympíuskákmótið hefst kl. 11 í dag. Í fyrstu umferð teflir liðið í opnum flokki við lið Palestínu. Andstæðingarnir þar hafa á milli 1900-2000 skákstig nema varamaðurinn sem er alþjóðlegur meistari með 2233 skákstig! Athyglisverð uppstilling. Sennilega á varamaðurinn að ná inn vinningum á neðsta borði en hann teflir þó ekki gegn Íslendingum í dag. Jóhann hvílir hjá körlunum þannig að uppstillingin er svona:

Kvennaliðið mætir liðið Bahamas. Þar er skákkonan á fyrsta borði með 1452 en aðrar eru stigalausar. Lenka Ptácníková hvíla í dag. Gaman að segja frá því að Nansý þreytir sína frumraun á Ólympíumóti í dag.

Í gærkvöldi fór fram opnunarhátíð mótsins. Sá besta sem undirritaður hefur séð hingað til. Kostnaður við hana er samkvæmt heimildum mínum hærri en heildarkostnaðurinn við EM landsliða á Íslandi!
Best opening ceremony I can recall at an olympiad, and I have been to them all since 1982. @BatumiChess2018 well done! Loved the absolutely brilliant Georgian dancing, and the closing „My Way“, with a nod to Sid Vicious, made me smile.
— Nigel Short (@nigelshortchess) September 24, 2018
https://platform.twitter.com/widgets.js
Very good job by the organizers of the opening ceremony of the Batumi Chess Olympiad at the Black Sea Arena! Looking forward for the beauty of chess kicking off tomorrow! pic.twitter.com/7Qjf6M0Ter
— Arkady Dvorkovich (@advorkovich) September 23, 2018
https://platform.twitter.com/widgets.js
Nokkuð óskipulag hefur verið á mótinu hingað til en slíkt reyndar fylgir oft upphafi slíkra móta. Skipulagningu á rútuferðum hefur verið í ólestri auk þess sem einhverjir hafa lent í því að gisting þeirra hefur verið afturkölluð. Færeyingar lentu í því að hótelið þeirra var afturkallað en þeir áttu að vera á Euphoria eins og íslenska liðið.
Athyglisverð kvörtun kom frá forseta rússneska skáksambandins í gær.

Kvörtuna verður hins vegar að setja í samhengi við það að framundan eru forsetakosnignar þar sem Rússinn Dvorkevich keppir við Makropoulos, starfandi forseta FIDE, um forsetaembættið.
Viðureignir dagsins á Chess24: Opinn flokkur | Kvennaflokkur
Mótið á chess-results 1.umferð: Opinn flokkur | Kvennaflokkur














