Við hefjum ólympíufarann nú fyrir Ólympíuskákmótið sem hefst 16. september í Samarkand í Úsbekistan. Hallgerður Helga ríður á vaðið.
Nafn og hlutverk
Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir, 2. borð í kvennaliðinu
Gukesh eða Sindarov?
Held með Gukesh, en efast um að hann taki þetta
Félag?
Hrókar alls fagnaðar
Kaffi eða te? Og ef kaffi – drekkur þú jafn mikla mjólk með kaffinu og Helgi Ólafsson?
Drekk ekki kaffi, en við og við fæ mér te
Hvernig er þínum undirbúningi (skáklegum, andlegum og líkamlegum) háttað fyrir Ólympíumótið nú?
Búin að tefla meira undanfarið hérna heima við, einnig undirbúa byrjanir og taktík
Hvað lið verður í öðru sæti í ensku úrvalsdeildinni á eftir Arsenal?
Hull
Bókin á náttborðinu?
The list
Hversu oft hefur þú farið á Ólympíuskákmót?
Sýnist þetta verða áttunda Ólympíumótið
Hvað er það fyrsta sem þú setur í ferðatöskuna?
Vegabréf
Hvað er það síðasta sem þú horfðir á Netflix (eða annarri sjónvarpsveitu)?
Datt í Love Island í sumar…
Hversu leiðinleg er rapptónlist?
Fer eftir
Þinn uppáhalds taflmaður og af hverju?
Peð, bjartastan vonin
Hver var besti árangur Úsbeka á Ólympíuskákmóti áður en þeir unnu gullið árið 2022?
Tjah… topp 20?
Úsbekistan og Lichtenstein eru einu löndin sem eiga eitt sameiginlegt. Getur þú ímyndað þér hvað það er?
Tvöfalt “land-locked”, fórum vel yfir þessa staðreynd þegar ég vann verkefni fyrir banka í Lichtenstein
Hverja telur þú líklegasta til sigurs á Ólympíuskákmótinu í opnum og kvennaflokki?
Indverjar í opna og Kínverjar í kvenna
Buettner, Rosenstein eða Turlov?
Buettner skástur?
Uppáhaldsskák?
Skákin á móti austurísku stúlkunni í Georgíu seinasta haust. Spennandi skák sem endaði með máti út á miðju borði
Hafa Úsbekar átt heimsmeistara í skák?
Nei held ekki
Hvað er skemmtilegasta/erfiðasta við 11 umferðir á Ólympíuskákmóti?
Skemmtilegast er að vinna góðar skákir, góður félagsskapur og að hafa tækifæri til að skipta um fókus frá vinnu yfir í að einbeita sér 100% að skákinni. Getur verið erfitt að halda góðum takti og matarlyst allt mótið, ólympíumótin eru óvenju löng og má líkja þeim við hálfgert maraþon
Helsta fyrirmynd í lífinu og/eða skák?
Ég lít mikið upp til foreldra minna
Þitt markmið á mótinu?
Gera mitt allra besta
Að lokum?
Áfram Ísland!

















