Magnús Carlsen (2875) vann sannfærandi sigur á Maxime Vachier-Lagrave (2779) í lokaumferð Grand Chess Tour-mótsins í Zagreb. Áttundi mótasigur Magnúsar í röð. Heimsmeistarinn hefur nú jafnað eigið stigamet en hann verður með 2882 skákstig á næsta stigalista – jafnmörgum og hann náði hæst áður í maí 2014. Magnús hefur hins vegar komist ofar á „lifandi skákstigum“ en þar náði hann 2889,2 stigum 21. apríl 2014. Magnús verður með 64 skákstiga forystu á Caruana á ágúst-listanum.
Nú er beðið eftir viðbrögðum Magnúsar við niðurstöðu aðalfundar norska skáksambandsins í gær en hann lýst þeirri skoðun sinni í aðdraganda aðalfundarins að það hafna samningum væru svik við framtíð norsks skáklífs.
That’s Carlsen’s 8th tournament win in a row:
🏆 Croatia GCT
🏆 Norway Chess
🏆 Lindores Abbey
🏆 Abidjan
🏆 Shamkir Chess
🏆 Grenke Chess
🏆 TATA Steel Chess
🏆 World Blitz Ch https://t.co/ofbASzjIBp— Tarjei J. Svensen (@TarjeiJS) July 7, 2019
First time winning the world cup! @GrandChessTour Zagreb pic.twitter.com/3bDB6YTMj7
— Magnus Carlsen (@MagnusCarlsen) July 8, 2019
Lokastaðan

Ítarlega umfjöllun má finna á Chess.com.












