Guðmundur Kjartansson

Evrópumót landsliða fer fram 24. október – 2. nóvember nk. í Batumi í Georgíu. Ísland sendir lið í opnum flokki. Lið Íslands skipa Hannes Hlífar Stefánsson, Bragi Þorfinnsson, Guðmundur Kjartansson, Helgi Áss Grétarsson og Dagur Ragnarsson. Dagana fram að keppni verða EM-fararnir kynntir til leiks en alls skipa íslensku sendisveitina átta manns.

Fyrstan kynnum við til leiks Guðmund Kjartansson.

Nafn 

Guðmundur Kjartansson

Hlutverk 

2.borð

Hver kenndi þér að tefla?

Óli bróðir

Fischer, Kasparov eða Carlsen?

Þeir eru ólíkir og ég reyni að draga lærdóm af hverjum og einum þeirra. Þetta eru þrír bestu skákmenn allra tíma og skákir þeirra veita manni mikinn innblástur. Kasparov og Karpov voru þeir skákmenn sem ég lærði mest af þegar ég var að byrja og þá frekar Karpov. Í augnablikinu hef ég mest gaman af því að fara yfir skákir Aljekíns.

Verður Liverpool loks enskur meistari næsta vor?

Hvernig er þínum undirbúningi háttað fyrir EM landsliða?

Ég huga að mataræði og svefni. Stunda líkamsrækt og hreyfi mig. Reyni að klára ýmis verk eins og að svara tölvupóstum og losna við allt sem gæti truflað mig fram að móti og meðan á mótinu stendur. Mæti snemma til Georgíu ásamt Hannesi til að jafna mig á flugþreytu og venjast tímamismuninum. Skáklega þá leysi ég þrautir og undirbý byrjanir.

Nefndu önnur lönd auk Georgíu sem eiga landamæri að Svartahafinu? (bannað að nota Google!)

Tyrkland, Búlgaría, Úkraína, Rússland.

Hversu oft hefur þú farið á EM landsliða?

Þetta verður fjórða skiptið

Minnisstæðasta atvik í miðri skák

Apaslagur fyrir utan gluggann á Indlandi, lék illa af mér stuttu seinna. Annars var ég að rifja það upp um daginn þegar maður tefldi á Skákþingi Reykjavíkur í gamla daga, þá var sjónvarp uppi á lofti og menn drifu sig að leika, hlupu upp litla hringstigann til að fylgjast með HM í handbolta. Þá heyrðist annað hvort mjög hátt JÁ!!! eða NEI!!! og svo komu 10 manns aftur niður hringstigann til að leika (eða sjá um skákstjórn) og svona gekk þetta áfram.

Hver verður næsti áskorandi Magnúsar?

Ding Liren eða Caruana aftur. MVL og Aronian til vara.

Hver eru þín markmið á mótinu?

Að gefa mig allan í þetta og gera sem mest fyrir liðið.

Eitthvað að lokum?

búmm búmm HÚH!

- Auglýsing -