Reykjavíkurleikarnir – landskeppni

    0
    997
    Reykjavíkurleikarnir
    Hvenær:
    30. janúar, 2022 @ 13:00 – 16:00
    2022-01-30T13:00:00-01:00
    2022-01-30T16:00:00-01:00
    Hvar:
    Laugardalshöll
    Engjavegur 8
    104 Reykjavík
    Ísland
    Tengiliður:
    Skáksamband Íslands

    Reykjavíkurleikarnir (Reykjavik International Games) fara fram 29. og 30. janúar nk.

    Skák verður að þessu sinni í fyrsta skipti hluti af Reykjavíkurleikunum og fagnar skákhreyfingin því mjög! Teflt verður í Laugardalshöllinni.

    Hápunktur verður fjögurra landa keppni sem fram fer sunnudaginn 30. janúar. Þar taka þátt margir af fremstu skákmönnum Norðurlandanna. Keppnin fer fram á RÚV, á milli 13 og 16, og verður í beinni útsendingu í umsjón Ingvars Þórs Jóhannessonar og Jóhönnu Bjargar Jóhannsdóttur.

    Danir, Norðmenn og Svíar taka þátt í landskeppninni, auk Íslendinga. Liðin skipa eftirtaldir skákmenn sem allt eru þrautreyndir landsliðmenn sinna landa.

    Ísland:

    Hjörvar Steinn annar fulltrúi Íslands.

    Hjörvar Steinn Grétarsson (2548)

    Lenka teflir fyrir Íslands hönd. Mynd: JHR

    Lenka Ptácníková (2173)

    Danmörk

    Mads Andersen verður annar fultrúi Danmerkur.

    Mads Andersen (2570)

    Ellen Fredericia Nilssen er yngsti keppandi mótsins. Er fædd 2001.

    Ellen Fredericia Nilssen (2110)

    Noregur

    Lars Oskar Hauge er annar fulltrúi Íslands.

    Lars Oskar Hauge (2513)

    Monika Machlik er annar fulltrúi Norðmanna.

    Monika Machlik (2134)

    Svíþjóð

    Erik Blomqvist (2536)

    Erik Blomqvist er annar fulltrúi Svíþjóðar

    Viktoria Johansson (2041)

    Viktoria Johansson er annar fulltrúi Svíþjóðar

    Tefldar eru atskákir (10+5) eftir útsláttarfyrirkomulagi. Verði jafnt (2-2) verður tefld  bráðabanaskák. Dregið verður um hvort bráðabanaskákin fari fram á karla- eða kvennaborðinu.

    Laugardaginn 29. janúar fer fram hraðskákmót í Laugardalshöllinni. Um er að ræða hraðskákmót þar sem erlendu keppendurnir taka þátt, sem og boðsgestir. Þátttakan miðast við u.þ.b. 40 keppendur.

    - Auglýsing -