Reykjavíkurleikarnir – hraðskákmót

    0
    955
    Reykjavíkurleikarnir
    Hvenær:
    29. janúar, 2022 @ 13:00 – 16:00
    2022-01-29T13:00:00-01:00
    2022-01-29T16:00:00-01:00
    Hvar:
    Laugardalshöll
    Engjavegur 8
    104 Reykjavík
    Ísland
    Tengiliður:
    Skáksamband Íslands
    Reykjavíkurleikarnir - hraðskákmót @ Laugardalshöll | Reykjavík | Ísland

    Skák verður hluti af Reykjavíkurleikunum í ár (Reykjavik International Games). Landskeppni Íslands, Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar verður á RÚV sunnudaginn, 30. janúar 2021. Nánar má lesa um landskeppnina á Skák.is.

    Laugardaginn, 29. janúar, fer fram Reykjavíkurhraðskákmótið í Laugardalshöllinni.

    Vegna samkomutakmarkanna er miðað við u.þ.b. 40 keppendur. Tefldar verða 11 umferðir með tímamörkunum 3+2. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.

    Keppnisrétt fyrir utan erlendu keppendurna sex eru skákmenn með meira en 2200 hrað- eða kappskákstig, kvennalandsliðskonur, meðlimir í u25-landsliðshópnum og Íslandsmeistarar í aldurshópnum y65, u16, u14 og u12.

    Allir skákir mótsins verða sýndar beint auk þess sem því verður streymt og Ingvar Þór Jóhannesson með þráðbeina lýsingu!

    Verðlaun eru sem hér segir:

    Aðalverðlaun

    1. 100.000
    2.   60.000
    3.   40.000

    Kvennaverðlaun

    1. 30.000
    2. 20.000
    3. 10.000

    Skráningarfrestur verður til miðvikudagsins, 26. janúar kl. 16.

    - Auglýsing -