Síminn Sport

Úrslit Síminn Invitational í netskák fara fram á sunnudagskvöldið kl. 19. Í úrslitum mætast stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson og hans fyrsti skákkennari, alþjóðlegi meistarinn, Björn Þorfinnsson.
Mótið er í umsjón Rafíþróttasambands Íslands í nánu samstarfi við Skáksamband Íslands. Beinar útsendingar verða á Símanum Sport. Aðrir styrktaraðilar eru Collab, Ljósleiðarinnn og Lengjan.
Hægt er að fylgjast með á Sjónvarpi Símans eða á YouTube rás RÍSÍ eða Twitch Rási RÍSÍ
Skákskýringarnar verða í umsjón Björns Ívars og Ingvars Þórs.
Viðureignirnar eru á Lengjunni.
Halldór Ingi Kárason, Unnar Ingvarsson, Brynjar Bjarkason, Aron d og Halldór Breynjar Halldórsson eru efstir í Draumaliðsdeildinni. Staðan í Draumaliðsdeildinni.
Í úrslitum verður 10 skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 5½ vinning.
Verðlaun í aðalkeppninni
- 200.000 kr
- 100.000 kr.
- 25.000 kr
- 25.000 kr.











