Vellir
221 Hafnarfjörður
Ísland

Íslandsmótið í skák (Skákþing Íslands) fer fram við glæsilegar aðstæður á Ásvöllum í Hafnarfirði dagana 15.-25. maí.
Mótið í ár verður eitt það sterkasta í sögunni. Af tólf keppendum eru sjö stórmeistarar (af alls 16 sem hafa verið útnefndir) sem er met þrátt þrátt fyrir allt. Auk þess einn stórmeistari kvenna, tveir alþjóðlegir meistarar, einn FIDE-meistari og einn fulltrúi titillausra!
Fimm keppendanna hafa áður verið Íslandsmeistarar. Þeira langoftast auðvitað Hannes Hlífar Stefánsson sem er þrettánfaldur Íslandsmeistari í skák.
Keppendalistinn er sem hér segir (skákstig og íslandsmeistaratitlar í opnum flokki í sviga)
- Hjörvar Steinn Grétarsson (2539-2) – stórmeistari
- Hannes Hlífar Stefánsson (2521-13) – stórmeistari
- Henrik Danielsen (2501-1) – stórmeistari
- Vignir Vatnar Stefánsson (2470-0) – stórmeistari
- Jóhann Hjartarson (2466-6) – stórmeistari
- Bragi Þorfinnsson (2431-0) – stórmeistari
- Guðmundur Kjartansson (2402-3) – stórmeistari
- Hilmir Freyr Heimisson (2353-0) – alþjóðlegur meistari
- Dagur Ragnarsson (2346-0) – alþjóðlegur meistari
- Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2338-0) – FIDE-meistari
- Lenka Ptácníková (2099-0) – stórmeistari kvenna
- Jóhann Ingvason (2076-0)
Glæsileg umgjörð verður á mótinu. Allir skákirnar í beinni (þó með 15 mínútna seinkun) og beinar lýsingar í umsjón okkar færustu lýsenda.
Styrktaraðilar mótsins eru
- Hafnarfjarðarkaupstaður
- Algalíf
- Teva
- Lengjan
- Guðmundur Arason
- MótX
Nánar hér: https://skak.is/skakthing/landslidsflokkur/









