Drottningarbragð er ein af elstu og klassískustu skákbyrjunum. Baráttan snýst strax um tök á miðborðinu og felur í framhaldinu í sér talsverða liðsflutninga og stöðubaráttu.
Drottningarbagð hefur í gegnum tíðina mikið verið teflt í heimsmeistaraeinvígjum, án nokkurs vafa vegna þess hversu traust afbrigðið er, bæði fyrir hvítan og svartan.