Selfyssingarnir Henrik og Bragi. Mynd: GB

Víkingaklúbburinn hefur tveggja vinninga forskot á SSON (Skákfélag Selfoss og nágrennis) í hálfleik Íslandsmóts skákfélaga en fyrri hlutanum lauk í dag í Rimaskóla. Víkingar unnu Taflfélag Reykjavíkur 6-2 en SSON lagði Breiðablik, Bolungarvík og Reykjanes að velli 6½-1½  og minnkaði þar með forystuna um hálfan vinning.

Skákfélagið Huginn er í þriðja sæti með 25½ eftir stórsigur á b-sveit Víkingaklúbbsins.

Úrslit 5. umferðar

Staðan í fyrstu deild

Baráttan um Íslandsmeistaratitilinn stendur bersýnlega á milli Víkinga og SSON. Víkingar hafa 2 vinninga í forskot en eiga eftir mæta eilítið sterkari sveitum. Huginn sem er í þriðja sæti eiga eftir að mæta báðum toppliðunum og þessir fjórar vinningar sem þeir hafa á næstu lið gæti farið flott.

Sex efstu liðin taka sæti í nýrri úrvalsdeild að ári og baráttan gæti orðið afar hörð um þau. Aðeins munar 4 vinningum á sveitinni í fjórða sæti og í því áttunda.

Rk. Team TB1 TB2
1 Víkingaklúbburinn a-sveit 32 8
2 Skákfélag Selfoss og nágrennis 30 10
3 Skákfélagið Huginn 26 7
4 Taflfélag Garðabæjar 22 6
5 Skákdeild Fjölnis 20 6
6 Taflfélag Reykjavíkur a-sveit 20 4
7 Breiðablik, Bolungarvík og Reykjanes 18 5
8 Skákfélag Akureyrar 18 4
9 Víkingaklúbburinn b-sveit 7,5 0
10 Taflfélag Reykjavíkur b-sveit 7,5 0

 

Nánar á Chess-Results.

2. deild

Skákdeild KR er miklum ham í 2. deild og hefur 2 vinninga forskot á næstu sveitir sem eru b-sveit Skákfélags Akureyrar og Taflfélag Vestmannayja. B-sveit Hugins er fjórða sæti. Fjögur efstu sætin gefa keppnisrétt í 1. deild (næstefstu deild) að ári. Baráttan gæti orðið hörð um fjórða sætið.

Rk. Team TB1 TB2 TB3
1 Skákdeild KR 18 8 0
2 Skákfélag Akureyrar b-sveit 16 6 2
3 Taflfélag Vestmannaeyja 16 6 0
4 Skákfélagið Huginn b-sveit 12 4 0
5 Skákdeild Fjölnis-b 10,5 4 0
6 Hrókar alls fagnaðar 9 4 0
7 Skákdeild Hauka 8 0 0
8 Taflfélag Garðabæjar b-sveit 6,5 0 0

Sjá nánar á Chess-Results.

3. deild

B-sveit Breiðabliks, Bolungarvíkur og Reykjaness er efst í 3. deild. Skáksamband Austurlands og Skákgengið eru skammt undan. c-sveit Taflfélags Reykjavíkur er í fjórða sæti en fjögur efstu sætin gefa keppnisrétt í 2. deild (þriðju efstu deild að ári). Liðin í 5.-11. sæti halda sæti sínu í þriðju deild en þrjú neðstu liðin falla niður í 4. deild.

Rk. Team TB1 TB2
1 Breiðablik, Bolungarvík og Reykjanes b-s 7 16,5
2 Skáksamband Austurlands 6 14
3 Skákgengið 6 14
4 Taflfélag Reykjavíkur c-sveit 5 14,5
5 Skákfélag Akureyrar öldungalið 5 13
6 Víkingaklúbburinn c-sveit 5 12
7 Taflfélag Reykjavíkur d-sveit 4 12,5
8 Vinaskákfélagið a-sveit 4 12
9 Skákdeild KR b-sveit 4 10,5
10 Taflfélag Akraness 3 12,5
11 Hrókar alls fagnaðar b-sveit 3 11,5
12 Skákfélag Sauðárkróks 2 11,5
13 Vinaskákfélagið b-sveit 2 10,5
14 Breiðablik, Bolungarvík og Reykjanes c-s 0 3

Nánar á Chess-Results.

4. deild

B-sveit SSON er á toppnum. Hefur unnið allar sínar viðureignir. B-sveit Taflfélags Vestmannaeyja, c-sveitir Hugins, Taflfélags Garðabæjar og Vestmannaeyja koma næstar.

Rk. Team TB1 TB2
1 Skákfélag Selfoss og nágrennis b-sveit 8 17,5
2 Taflfélag Vestmannaeyja b-sveit 6 16
3 Skákfélagið Huginn c-sveit 6 15,5
4 Taflfélag Garðabæjar c-sveit 6 13,5
5 Taflfélag Vestmanneyja c-sveit 6 13
6 Skákfélag Selfoss og nágrennis c-sveit 4 14
7 Taflfélag Reykjavíkur e-lið 4 13,5
8 Víkingaklúbburinn d-sveit 4 13
9 Taflfélag Reykjavíkur f-lið 4 12,5
10 Skákfélag Selfoss og nágrennis d-sveit 4 11,5
11 Breiðablik unglingalið-a 4 11,5
12 Skákdeild Fjölnis c-sveit 4 10,5
13 Skákfélag Akureyrar c-lið 2 9
14 Grindavík 2 9
15 Skákfélag Selfoss og nágrennis e-sveit 0 8
16 Skákdeild Fjölnis unglingalið 0 4

Sjá nánar á Chess-Results.

Úrvalsdeild að ári

Á næsta ári verður tekin upp úrvalsdeild. Skákáhugamönnum til fróðleiks verður deildaskipting að ári birt í samræmi við stöðuna eftir hverja umferð. 

  • Úrvalsdeild
  • 1. deild
  • 2. deild 
  • 3. deild
  • 4. deild

Heimasíða mótsins