Meistaramót Skákskóla Íslands 2021 – Ungmennameistaramót Íslands 2021 – U22 verður haldið dagana 17. – 19. desember. Teflt verður húsnæði Skákskóla Íslands, Faxafeni 12. Íslandsmeistarinn tryggir sér sæti í keppni landsliðsflokks á Skákþingi Íslands.

Dagskrá:

  1. umferð, kl. 18, föstudaginn 17. desember
  2. umferð, kl. 19.30,föstudaginn 17. desember
  3. umferð kl.: 11:00, laugardaginn, 18. desember
  4. umferð kl.: 17:00, laugardaginn, 18. desember
  5. umferð kl.: 11:00, sunnudaginn, 19. desember
  6. umferð kl.: 17:00, sunnudaginn, 19. desember

Ekki verður hægt að taka hálfs vinnings yfirsetu á mótinu.

Mótið er opið öllum skákmönnum fæddum á bilinu 1999-2005. Jafnframt er yngri skákmönnum heimilt að taka þátt hafi þeir a.m.k. 1600 kappskákstig eða hafi verið meðal verðlaunahafa í flokkum í u12-u16 á Íslandsmót ungmenna 2021.

Teflt verður um Íslandsmeistaratitilinn verði menn jafnir að vinningum. Stig eru látin gilda um önnur sæti verði menn jafnir að vinningum.

Tímamörk í fyrstu tveimur umferðunum er 20+5 og 90+30 í seinni fjórum.

Mótið er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

Mótið fer fram í Skáksambandi Íslands að Faxafeni 12. Skráning er til kl. 16, fimmtudaginn, 18. desember á Skák.is.

Verðlaun:

  1. sæti: Farmiði að verðmæti kr. 50 þúsund + uppihaldskostnaður kr. 35 þús. Þáttökuréttur í landsliðsflokki á Skákþingi Íslands 2021
  2. sæti: Farmiði að verðmæti kr. 40 þús.
  3. – 5. sæti: Skákbækur eða efni að eigin vali frá Chessable.

Auk þess verða veitt stigaflokkaverðlaun í mótinu:

1800 – 2000 elo:

  1. verðlaun: Farmiði að verðmæti kr. 40 þús.

1600 – 1800 elo:

  1. verðlaun: Farmiði að verðmæti kr. 40 þús.

* Ekki er hægt að vinna til verðlauna nema í einum flokki.

Mótsstjórn áskilur sér rétt til að gera breytingar á boðaðri dagskrá.

 

Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands

Helgi Ólafsson, skólastjóri Skákskóla Íslands