Íslandsmót barna- og unglingasveita (taflfélaga) 2021 fer fram sunnudaginn, 5. desember í skákhöllinni í Faxafeni 12. Vegna samkomutakmarkana er skipt í tvo riðla, sem tefldir verða í sitthvoru rýminu, og svo tefla sigursveitir riðlanna til úrslita. Taflmennskan hefst kl. 14.
Taflfélag Garðabæjar og Skáksamband Íslands standa í sameiningu að mótshaldinu í ár.
Mótið er fyrir skákmenn fædda 2006 og síðar.
Tímamörk verða 8+3. Líklega verða 8-9 sveitir í hvorum riðli. Í hverri sveit má hafa einn varamann. Leitast verður við að hafa riðlana sem jafnasta.
Verði góð þátttaka (+16 eða 18 sveitir) er til athugunar að bæta við b-deild sem tefld yrði einnig á sunnudeginum en hæfist kl. 11.
Þátttökugjöld eru 6.000 kr. fyrir A lið og 3.000 kr. fyrir hvert lið eftir það. Hámarksgjald fyrir félag er 20.000. kr
Mótið verður reiknað til alþjóðlegra atskákstiga.
Reglugerð mótsins – athugið að vegna samkomutakmarkana er ekki hægt að fara eftir þeim að fullu leyti.
Sérreglur vegna mótsins
- Áhorfendur eru ekki velkomnir á skákstað – skutlað og sótt gildir
- Einn varamaður leyfður með hverri sveit – og að hámarki einn liðsstjóri með hverju félagi í hverjum riðli og í úrslitakeppni. Ef hins vegar hafi félag fleiri en 2 lið í riðli má senda einn liðstjóra til viðbótar í viðkomandi riðli.
Liðsstjórar séu ávallt fyrir aftan liðsmenn á meðan teflt er. - Ef með b-sveitum fleiri en 16-18 sveitir eru skráðar til leiks – verður horft til styrkleika sveita við flokkun í a- og b-deild. Þó njóta b-sveitir ávallt forgangs á c-sveitir, c-sveitir á d-sveitir o.s.frv.
- Hægt er að óska eftir keppnisrétt í b-deild þótt að lið eigi keppnisrétt í a-deild telji liðsstjórar það henta sínu liði betur.
- A- og b-sveitir sama félags skulu ávallt vera í sitthvorum riðlinum og sveitum frá sama félagi skal skipt jafnt á milli riðla eins og hægt er.
- Þar sem ekki er teflt eftir svissneska kerfinu eru oddastig ekki í samræmi við reglugerð*
- Þessar reglur eru miðaðar við núverandi sóttvarnartakmarkanir þar sem 50 geta komið saman. Verði breyting þar á fyrir mót – kann fyrirkomulag mótsins að taka breytingum.
Skráningarfrestur liða þarf að skila inn eigi síðar en kl. 23:59 miðvikudaginn, 1. desember. Á fimmtudagsmorguninn, 14. desember verður gefið út hvaða lið fá keppnisrétt og hvaða lið lenda í a-deild og b-deild.
Endanlegri liðsskipan, sem ekki verður hægt að breyta nema að sýnt sé fram á mjög góðar ástæður, skal skila eigi síðar en kl. 12, föstudaginn, 4. desember. Í kjölfarið verður birt skipting í riðla.
Verðlaun og oddastig
Í keppninni um gull verða tefldar tvær umferðir. Verði jafnt 4-4 verður teflt til þrautar með tímamörkunum 3+2. Sveitirnar sem lenda í öðru sæti í hvorum riðli fá brons.
Veitt verða verðlaun fyrir þrjár efstu sveitirnar í b-deild
*Oddastig séu sveitir jafnar að vinningum
- Stig (match point)
- Innbyrðis viðureign
- Sonneborn-Berger
- Hlutkesti