Evrópumót landsliða fer fram 24. október – 2. nóvember nk. í Batumi í Georgíu. Ísland sendir lið í opnum flokki. Lið Íslands skipa Hannes Hlífar Stefánsson, Bragi Þorfinnsson, Guðmundur Kjartansson, Helgi Áss Grétarsson og Dagur Ragnarsson. Dagana fram að keppni verða EM-fararnir kynntir til leiks en alls skipa íslensku sendisveitina átta manns.
Í dag kynnum við til leiks Hannes Hlífar Stefánsson, fyrsta borðs mann sveitarinnar.
Nafn
Hannes
Hlutverk
Tefli á fyrsta borði.
Hver kenndi þér að tefla?
Bræður mínir kenndu mér að tefla
Fischer, Kasparov eða Carlsen?
Kasparov er bestur
Verður Liverpool loks enskur meistari næsta vor?
Liverpool skítur á sig! [Aths. ritstjóra: Kjaftæði]
Hvernig er þínum undirbúningi háttað fyrir EM landsliða?
Bara að stúdera eitthvað
Nefndu önnur lönd auk Georgíu sem eiga landamæri að Svartahafinu? (bannað að nota Google!)
Bannað að koma með sömu spurningu og síðan í fyrra!
Hversu oft hefur þú farið á EM landsliða?
Man það ekki!
Minnisstæðasta atvik í miðri skák
Minnisstæðast þegar ég var á Delhi fyrir nokkrum árum og eftir 3 umferðir á alþjóðlega skákmótinu mótinu kemur Gúmmi til mín í öngum sínum hafði tapað tveimur fyrstu. „Þeir eru ekki með skáklukku – einn dómarinn ætlar að nota skeiðklukku er þetta löglegt“ spurði Gummi mig. Skákin fór fram og sem betur fer vann Gúmmi örugglega en þetta er eina skiptið sem ég minnist þess að skeiðklukka hafi verið notuð á alþjóðlegu skákmóti!
Hver verður næsti áskorandi Magnúsar?
Ding Liren.
Hver eru þín markmið á mótinu?
Markmið að hækka á stigum.
Eitthvað að lokum?
Skák og mát!

















