Íslandsmót skákfélaga 2025-26

    0
    545
    Hvenær:
    5. mars, 2026 @ 19:00 – 8. mars, 2026 @ 16:00
    2026-03-05T19:00:00-01:00
    2026-03-08T16:00:00-01:00
    Hvar:
    Rimaskóli
    Sóleyjarimi 11
    112 Reykjavík
    Ísland
    Íslandsmót skákfélaga 2025-26 @ Rimaskóli | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Síðari hluti Íslandsmóts skákfélaga 2025-26 fer fram dagana 5.–8. mars 2026. Teflt er í Rimaskóla að því undanskildu að 6. og 7. umferð í úrvalsdeild verða tefldar í Taflfélagi Reykjavíkur.

    Úrvalsdeildin verður tefld frá fimmtudegi til sunnudags. Aðrar deildir verða tefldar á laugardag og sunnudag.

    Tímasetning Úrvalsdeild Aðrar deildir
    Fimmtud., 5. mars, kl. 19:00 (TR) 6. umf.
    Föstud., 6. mars, kl. 19:00 (TR) 7. umf.
    Laugard., 7. mars, kl. 11:00 (Rimaskóli) 8. umf. 5. umf.
    Laugard., 7. mars, kl. 17:30 (Rimaskóli) 9. umf. 6. umf.
    Sunnud., 8. mars, kl. 11:00 (Rimaskóli) 10. umf. 7. umf.

    Í úrvalsdeild verða tímamörkin 90 mínútur á fyrstu 40 leikina auk þess sem 15 mínútur bætast við á hvorn keppenda eftir 40 leiki + 30 sekúnda viðbótartími eftir hvern leik. Í öðrum deildum verður umhugsunartíminn hefðbundin eða 90 mín. á skákina + 30 sek. viðbótartími eftir hvern leik.

    Opið er fyrir félagaskipti þeirra sem ekki tefldu í fyrri hlutanum til 13. febrúar nk. Þessi regla á þó eingöngu um þá sem hafa lögheimilli hérlendis og/eða hafa íslenskan ríkisborgararétt. Þeir sem eru utan taflfélaga (og tefldu ekki í fyrri hlutanum) og eru án alþjóðlegra kappskákstiga geta þó ávallt skráð sig í félag.

    - Auglýsing -