Íslandsmót barnaskólasveita, 4.-7. bekkur

    0
    685
    Hvenær:
    18. apríl, 2026 @ 13:00 – 16:00
    2026-04-18T13:00:00+00:00
    2026-04-18T16:00:00+00:00
    Hvar:
    Rimaskóli
    Sóleyjarimi
    112 Reykjavík
    Ísland
    Tengiliður:
    Skáksamband Íslands
    5689141
    Íslandsmót barnaskólasveita, 4.-7. bekkur @ Rimaskóli | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Það verður (skóla)skákveisla um helgina 18. og 19. apríl. Þá fara fram tvö skólaskákmót í Rimaskóla. Íslandsmót barnaskólasveita (4.-7. bekkur) fer fram laugardaginn 18. apríl og Íslandsmót grunnskólasveita (8.-10. bekkur) fer fram sunnudaginn 19. apríl.

    Athygli er vakin á því að yngri nemendur geta mögulega teflt á báðum mótunum.

    ÍSLANDSMÓT BARNASKÓLASVEITA (4.-7. BEKKUR)

    Mótið fer fram laugardaginn 18. apríl kl. 13 í Rimaskóla. Tefldar verða átta umferðir eftir svissneska kerfinu. Umhugsunartími verður 10+2 mínútur á skák fyrir hvern keppenda.

    Hver skóli getur sent fleiri en eina sveit. Í hverri sveit eru fjórir skákmenn. Keppendur skulu vera í 4.–7. bekk en þó er nemendum úr 1.–3. bekk leyfilegt að tefla með en þá eingöngu í a- og b-sveit. Í hverri sveit mega vera allt að þrír varamenn.

    Þátttökugjöld kr. 12.000 kr.- á sveit. Þó ekki hærra en 24.000 kr. á skóla. Frítt er fyrir sveitir utan höfuðborgarsvæðisins.

    Veitt verða verðlaun fyrir efstu b-e sveitir ásamt verðlaunum fyrir efstu sveitir af landsbyggðinni.

    Skráningarfrestur er til kl. 9, föstudaginn, 17. apríl. 

    Íslandsmeistararnir hljóta rétt til þátttöku á Norðurlandamóti barnaskólasveita sem fram fer í Svíþjóð í haust.

    Rimaskóli varð Íslandsmeistari barnaskólasveita í fyrra.

    - Auglýsing -