Síðari hluti Íslandsmóts skákfélaga 2021-22 fer fram dagana 3.-6. mars nk. Síðari hlutinn fer fram í Egilshöllinni, höfuðstöðvum Fjölnis rétt eins og sá fyrri.

Úrvalsdeildin verður tefld frá fimmtudegi-sunnudags. Aðrar deildir verða tefldar laugardag-sunnudags.

Tímasetning Úrvalsd. Aðrar
Fimmtud., 3. mars, kl. 19:30 6. umf.  
Föstud., 4. mars kl. 19:30 7. umf.  
Laugard., 5. mars, kl. 11:00 8. umf. 5. umf.
Laugard., 5. mars, kl. 17:00 9. umf. 6. umf.
Sunnud., 6. mars, kl. 11:00 10. umf. 7. umf.
Sunnud., 6. mars kl. 16:30 Verðlaunaafh. Verðlaunaafh.

Umhugsunartími er 90 mín. á skákina + 30 sek. viðbótartími bætist við eftir hvern leik. Mæta þarf til að leiks 30 mínútna eftir að umferð hefst – annars er tæmt tap.