Síðari hluti Íslandsmóts skákfélaga 2021-22 fer fram dagana 3.-6. mars nk. Síðari hlutinn fer fram að mestu í Egilshöllinni, höfuðstöðvum Fjölnis rétt eins og sá fyrri.

Úrvalsdeildin verður tefld frá fimmtudegi-sunnudags. Aðrar deildir verða tefldar laugardag-sunnudags.

Rétt er vekja athygli á því að taflmennska á fimmtu- og föstudaginn í úrvalsdeild fer fram í félagsheimili TR, Faxafeni 12.

Tímasetning Úrvalsd. Aðrar
Fimmtud., 3. mars, kl. 19:30 6. umf. (TR)
Föstud., 4. mars kl. 19:30 7. umf. (TR)
Laugard., 5. mars, kl. 11:00 8. umf. (Egilshöll) 5. umf. (Egilshöll)
Laugard., 5. mars, kl. 17:00 9. umf. (Egilshöll) 6. umf. (Egilshöll)
Sunnud., 6. mars, kl. 11:00 10. umf. (Egilshöll) 7. umf. (Egilshöll)
Sunnud., 6. mars kl. 16:30 (eða fyrr) Verðlaunaafh. (Egilshöll) Verðlaunaafh. (Egilshöll)

 

Umhugsunartími er 90 mín. á skákina + 30 sek. viðbótartími bætist við eftir hvern leik. Mæta þarf til að leiks 30 mínútna eftir að umferð hefst – annars er tæmt tap.