Taflfélag Reykjavíkur sendi sex lið til leiks á Íslandsmót skákfélaga 2019-2020 eins og undanfarin ár. A og B-liðin voru í fyrstu deild, C og D-liðin í þriðju deild og E og F-liðin í fjórðu deild. Að þessu sinni var því engin sveit TR í annarri deild. A-liðið stóð sig með ágætum, þótt að stundum hafi það kannski fengið aðeins of fáa vinninga gegn sterkustu sveitunum, en það góða er að liðið hefur aðeins “léttara plan” í vor og ætti að geta tryggt sér sæti í hinni nýju úrvalsdeild sem á að hefjast haustið 2021 ef fram heldur sem horfir. A-liðið var svipað skipað eins og undanfarin ár en helst breytingin er sú að Bragi Þorfinnsson tefldi að þessu sinni með gríðarsterkri sveit Selfoss en í staðin hefur Helgi Áss Grétarsson komið sér vel fyrir á öðru borði á eftir Guðmundi Kjartanssyni. Margeir Pétursson og úkraínski stórmeistarinn Oleksandr Sulypa styrktu liðið enn á ný og frá Danmörku komu þeir Hilmir Freyr Heimisson og Mikkel Mansori Jacobsen sem báðir eru Fide-meistarar. Hilmir stóð sig best, hlaut 3.5 vinning af fjórum og hækkaði um 16 ELO-stig. Ingvar Þór Jóhannesson, sem einnig er Fide-meistari tefldi athyglisverðar skákir og gerði þeim meðal annars skil á youtube rás sinni hvar hann fór meðal annars yfir skák sína gegn Jóni L. Árnasyni. Aðrir sem tefldu fyrir A-liðið voru Daði Ómarsson, Omar Salama, Bárður Örn Birkisson og Aron Þór Mai. Aron tefldi eina skák fyrir A-liðið, sína fyrstu, en líklega ekki sína síðustu. Í hálfleik er A-lið TR í sjötta sæti en mun vonandi færast aðeins ofar á listanum eftir seinni hlutann á Selfossi. Ríkharður Sveinsson, formaður TR, var liðsstjóri A-liðsins.
Eins og áður kom fram tefldi TR fram tveimur liðum í þriðju deild, TR-C og TR-D. Reyndar komst D-liðið á síðustu stundu upp í þriðju deild vegna forfalla annarra liða í keppninni. C-liðið stóð sig ágætlega og er í hálfleik í fjórða sæti. Það eru einmitt efstu fjögur liðin í þriðju deild sem fá sæti í hinni nýju annarri deild að ári, svo nú skiptir máli að liðið haldi sínu striki í vor. Fjórir skákmenn tefldu þrjár til fjórar skákir fyrir TR-C, þeir Eiríkur K. Björnsson, Jon Olav Fivelstad, Magnús Kristinsson og Agnar Darri Lárusson. Agnar vann allar skákir sínar þrjár og hækkaði um 19 stig. Einnig voru þónokkrir B- og D-liðsmenn sem litu við einu sinni í C-liðinu. D-sveitin er akkúrat í miðjunni, 7 sæti af 14 liðum, sem er ánægjulegur árangur miðað við að liðið átti upphaflega að vera í fjórðu deild. Tveir ungir skákmenn sem hafa ekki áður teflt með D-liðinu, Kristján Dagur Jónsson og Benedikt Þórisson, stóðu sig vel. Kristján Dagur græðir 27 stig og Benedikt um 19 stig. Þess má einnig geta að Þorsteinn Magnússon tefldi allar skákirnar fjórar. TR-D átti til að mynda sterkt 3-3 jafntefli gegn Vinaskákfélaginu hvar Hilmar Þorsteinsson vann mann 150 stigum hærri. Liðsstjóri bæði C- og D-liðsins var Eiríkur K. Björnsson.
Í fjórðu deild sendi Taflfélagið tvö lið, TR-E og TR-F. F-liðið var skipað skákbörnum sem komin eru með reynslu af taflmennsku á kappskákmótum, En E-liðið var skipað krökkum sem voru aðeins lengra kominn auk fullorðinna skákmanna. Öðlingarnir Halldór Garðarsson og Guðmundur Aronsson tefldu báðir með bæði D- og E-liðinu og stóðu sig með prýði. Þeir Árni Ólafsson og Ingvar Wu Skarphéðinsson tefldu hvortveggi allar skákirnar og Ingvar hækkaði um heil 55 stig fyrir árangur sinn. Árni hækkaði um 18 stig, Leifur Þorsteinsson um 17 og Sigurður J. Sigurðsson um 15 stig. E-liðið er í 7. sæti af 16 liðum í fjórðu deild. Alls voru 12 skákkrakkar sem teflu með F-liði TR, þar af fimm sem ekki eru komin með skákstig, en það gæti þó breyst hvað á hverju. Iðunn Helgadóttir stóð sig best, hækkaði um 25 stig, vann tvær af þremur skákum. Jósef Ómarsson hlaut einnig tvo vinninga í þremur skákum. F-lið TR er í 9. sæti að fyrri hálfleik loknum, ágætis árangur. Svo verður liðið að sjálfsöfðu orðið miklu sterkara í seinni hlutanum, enda krakkarnir að taka miklum framförum. Liðsstjóri E og F-liðanna var Una Strand Viðarsdóttir.