Ólympíuskákmótið verður sett í Búdapest 10. september nk. og stendur til 22. september. Ísland sendir tvö lið til keppni og fram að móti kynnum við einn fulltrúa á dag. Nú kynnum við til leiks Róbert Lagerman sem fulltúri Íslands meðal skákstjóra.
Nafn
Róbert Lagerman (Don Roberto)
Kasparov eða Carlsen?
Carlsen
Félag
Vinaskákfélagið
Hvernig er þínum undirbúningi (skáklegum, andlegum og líkamlegum) háttað fyrir Ólympíumótið nú?
Fjögur dómaranámskeið á netinu 2 klst. í senn. á hverjum laugardegi fram að Ólympíuleikunum, og svo skáklögin lesin. Sund, göngutúrar, kaldi potturinn og núvitund.
Hvaða Ungverjar hafa teflt heimsmeistaraeinvígi í skák?
Leko, Steinitz, Susan Polgar
Hvað lið verður í öðru sæti í ensku úrvalsdeildinni á eftir Man. City?
Liverpool
Hvaða Ungverji var upphafsmaður Búdapest-afbrigðisins í lok 19. aldar?
Manstu eftir einhverjum Íslendingum sem hafa teflt það í gegnum tíðina? Maróczy, Hrafn Jökulsson
Bókin á náttborðinu?
Ayurveda
Hversu oft hefur þú farið á Ólympíuskákmót?
2svar
Hvað er það síðasta sem þú horfðir á Netflix (eða annarri sjónvarpsveitu)?
Furiosa : Mad Max Saga
Hefurðu teflt á First Saturday-móti – eða öðru móti í Ungverjalandi?
Nokkrum sinnum á First Saturday, og einnig í Kecskemét , nælt mér í 3 IM áfanga á þessum skákmótum 🙂
Hvernig finnst þér ungverks gúllassúpa?
Sú langbesta
Hvaða Íslendingur tapaði fyrir tveimur Polgar-systranna á Reykjavíkurskákmótinu 1988?
Kannski Hannes Hlífar
Hverja telur þú líklegasta til sigurs á Ólympíuskákmótinu í opnum og kvennaflokki?
Indland og Kína
Donald eða Kamala?
Kominn tími á fyrsta kvenforsetann to make America Great Again
Besta skák sem þú hefur teflt á Ólympíuskákmóti eða annarri liðakeppni.
Róbert Lagerman vs. Olle Johansen 1987 Heimsmót Flugfélaga í skák.
Ding eða Gukesh?
Gukesh
Sterkasti skákmaður, lífs eða liðinn, af ungverskum ættum? Hér er Google og öll önnur hjálpartæki bönnuð!
Steinitz
Helsta fyrirmynd í skák og af hverju?
Ég sjálfur, dagleg áskorun að gera betur.
Við höldum svo áfram að kynna Ólympíufarinn – einn á dag!
- GM Vignir Vatnar Stefánsson – opinn flokkur
- GM Guðmundur Kjartansson – opinn flokkur
- GM Hannes Hlífar Stefánsson – opinn flokkur
- GM Helgi Áss Grétarsson – opinn flokkur
- IM Hilmir Freyr Heimisson – opinn flokkur
- GM/FST Helgi Ólafsson – liðsstjóri
- WIM Olga Prudnykova – kvennaflokkur
- WGM Lenka Ptácníková – kvennaflokkur
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir – kvennaflokkur
- WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir – kvennaflokkur
- Iðunn Helgadóttir – kvennaflokkur
- FM/FT Ingvar Þór Jóhannesson – liðsstjóri
- IA/FM Róbert Lagerman – skákstjóri
- Gunnar Björnsson – FIDE-dindill














