Lokafrestur félagaskipta er runninn út. Þeir sem eru utan félaga og án kappskákstiga geta þó gengið í nýtt félag
Ný reglugerð um Íslandsmót skákfélaga hefur tekið gildi. Rafræn skil munu verða í öllum deildum nema 4. deild. Liðsstjórar hafa fengið tölvupóst frá yfirdómara mótsins, Þóri Beneditssyni þar sem fyrirkomulagið er útskýrt.
Minnt er á skráningarfrestur í 4. deild rennur út á föstudaginn 27. september.
———————–
Fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga 2024-25 fer fram dagana 3.-6. október nk. Fyrri hlutinn fer fram í Rimaskóla.
Fyrsta umferð (eingöngu í úrvalsdeild) mun hefjast kl. 19.00 fimmtudaginn 3. október.
Aðrar deildir munu hefjast föstudaginn 4. október kl. 19:00. Síðan verður teflt laugardaginn 5. október kl. 11.00 og kl. 17.30 sama dag. Síðasta umferðin í fyrri hlutanum hefst kl. 11.00 sunnudaginn, 6. október. Allar deildir hefjast á sama tíma.
Síðasti möguleiki fyrir félagaskipti er 13. september kl. 23:59. Skákmenn án félags og alþjóðlegra kappskákstiga eru undanþegnir þeim fresti.
Í úrvalsdeild verða tímamörkin 90 mínútur á fyrstu 40 leikina auk þess sem 15 mínútur bætast við á hvorn keppenda eftir 40 leiki + 30 sekúnda viðbótartími eftir hvern leik. Í öðrum deildum verður umhugsunartími 90 mín. á skákina + 30 sek. viðbótartími eftir hvern leik.
Þátttökugjöld 2024-25 verða
• Úrvalsdeild 140.000 kr.
• 1. deild 95.000 kr.
• 2. deild 45.000 kr.
• 3. deild 35.000 kr.
• 4. deild 25.000 kr.
SÍ endurgreiðir ferðakostnað innanlands, fyrir þá sem koma langt að. Allt að kr. 30.000 kr. í úrvalsdeild fyrir þá sem tefla allar fimm umferðirnar en kr. 15.000 kr. fyrir aðra í úrvalsdeild og í 1. fyrstu deild gegn framvísun kvittana. Ekki er endurgreiddur ferðakostnaður fyrir aðrar deildir.
Skráning fer fram á Skák.is (guli kassinn).
Skráningarfrestur er til 10. september 2024 í úrvalsdeild, 1. deild, 2. deild og 3. deild en til 27.september í 4. deild.
Síðari hluti mótsins fer fram 27. febrúar til 2. mars 2025.