Við höldum áfram með Ólympíufarann fyrir Ólympíuskákmótið sem hefst 16. september í Samarkand í Úsbekistan. Að þessu sinni kynnum við til leiks Íslandsmeistarann í skák, Hilmi Frey Heimisson.
Nafn og hlutverk
Hilmir Freyr Heimisson, 2. borðsmaður
Gukesh eða Sindarov?
Finnst Sindarov frændi mjög flottur og líka sem skákmaður.
Félag?
Breiðablik góða
Kaffi eða te? Og ef kaffi – drekkur þú jafn mikla mjólk með kaffinu og Helgi Ólafsson?
Te ef maður er veikur annars hvorugt.
Hvernig er þínum undirbúningi (skáklegum, andlegum og líkamlegum) háttað fyrir Ólympíumótið nú?
Sofa vel, lyfta, sauna og köld sturta og svona fyrir andlegan styrk og skáklega séð, lesa bækur, leysa þrautir og augljóslega fínpússa byrjunar-kerfin fyrir mótið.
Hvað lið verður í öðru sæti í ensku úrvalsdeildinni á eftir Arsenal?
Veit ekki. Jújú en fylgist ekkert með fótbolta lengur en pabbi er víst einhver þjálfari nokkur hér á landi.
Bókin á náttborðinu?
Nail it like Nepomníatstsjí! Fín bók svona um hans feril og snýst um hans bestu skákir og hugsunarhátt og slíkt.
Hversu oft hefur þú farið á Ólympíuskákmót?
Þetta verður í annað skiptið.
Hvað er það fyrsta sem þú setur í ferðatöskuna?
Sokka.
Hvað er það síðasta sem þú horfðir á Netflix (eða annarri sjónvarpsveitu)?
Suits.
Hversu leiðinleg er rapptónlist?
Fer eftir annars er Lil Uzi Vert og minn maður Issi nettir.
Þinn uppáhalds taflmaður og af hverju?
Vignir Vatnar!! ég er ekki í prófi hjá nokkrum manni.
Hver var besti árangur Úsbeka á Ólympíuskákmóti áður en þeir unnu gullið árið 2022?
Örugglega silfur.
Úsbekistan og Lichtenstein eru einu löndin sem eiga eitt sameiginlegt. Getur þú ímyndað þér hvað það er?
Ekki hugmynd.
Hverja telur þú líklegasta til sigurs á Ólympíuskákmótinu í opnum og kvennaflokki?
Held USA í opnum þeir hljóta fara vinna eitthvað en þeir eru vanalega með fáranlega sterkt lið, sennilega indverjarnir í kvenna.
Buettner, Rosenstein eða Turlov?
Veit ekkert hverjir þessir menn eru.
Uppáhaldsskák?
Ég er með margar góðar en það hlýtur að vera þegar ég kom öllum á óvart í fyrstu skákinni á EM einstaklinga þegar það var haldið á Hotel Natura held ég 2021 Banusz – Heimisson 0-1.
Hafa Úsbekar átt heimsmeistara í skák?
Væntanlega Rustam Kasimdzhanov, 2004.
Hvað er skemmtilegasta/erfiðasta við 11 umferðir á Ólympíuskákmóti?
Djöfull er gaman að þessu.
Helsta fyrirmynd í lífinu og/eða skák?
Vignir Vatnar augljóslega, hann er hetjan mín.
Þitt markmið á mótinu?
Standa mig fyrir land mitt.
Að lokum?
Er ekki bara gaman að þessu?
Ólympíufararnir
Opinn flokkur
- GM Vignir Vatnar Stefánsson
- IM Hilmir Freyr Heimisson
- GM Jóhann Hjartarson
- GM Hannes Hlífar Stefánsson
- GM Guðmundur Kjartansson
- GM/FST Helgi Ólafsson (liðsstjóri)
Kvennaflokkur
- WGM Lenka Ptácníková
- WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir
- WFM Guðrún Fanney Briem
- WCM Iðunn Helgadóttir
- Hrund Hauksdóttir
- FM/FT Ingvar Þór Jóhannesson (liðsstjóri)
Aðrir
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, forseti SÍ
- IA Jón Úlfur Hafþórsson, skákstjóri
- Gunnar Björnsson, dindill
















