
Landsmótið í skólaskák fór fram um helgina í húsnæði Skákskóla Íslands. Kópavopsbúarnir og skólafélagarnir úr Hörðuvallaskóla Vignir Vatnar Stefánsson og Benedikt Briem komu sáu og sigruðu. Vignir Vatnar í eldri flokki (8.-10. bekk) og Benedikt í þeim yngri (1.-7. bekk).
Eldri flokkur
Vignir hlaut 6 vinninga í 7 skákum. Vignir lét ekki tap í annarri umferð gegn Arnari Heiðarssyni (1761) slá sig út af laginu heldur vann rest.
Stephan Briem (2213) varð annar með 5½. Arnar og Alexander Oliver Mai (2025) urðu jafnir í 3.-4. sæti og fékk Arnar bronsið eftir stigaútreikning.
Lokastaðan á Chess-Results.
Yngri flokkur

Það var mikil spenna í yngri flokknum og þrír efstir og jafnir fyrir lokaumferðina. Svo fór að Benedikt Briem (1811) varð einn efstur með 5½ vinning. Gunnar Erik Guðmundsson (1775), Benedikt Þórisson (1400), Óttar Örn Bergmann Sigfússon (1400) og Adam Omarsson (1244) urðu jafnir í 2.-5. sæti með 4½ vinning. Gunnar Erik fékk silfrið eftir stigaútreiking en Benedikt fékk bronsið.
Lokastaðan á Chess-Results.
Landsmótsstjóri var Ingibjörg Edda Birgisdóttir. Hún og Þórir Benediktsson önnuðust skákstjórn.







