Fyrsta mótið í nýrri Bikarsyrpu stúlkna fór fram síðastliðna helgi í Rimaskóla við góðar aðstæður. Alls mættu 22 stúlkur á grunnskólaaldri til leiks og var teflt í einum flokki. Um miðbik móts gæddu keppendur sér á pizzum frá Dominos, og voru stúlkurnar til algjörrar fyrirmyndar á mótinu.
Kvennaskáknefnd Skáksambands Íslands hélt mótið í samstarfi við skákdeild Fjölnis og þökkum við kærlega fyrir okkur. Einnig viljum við þakka öðrum stuðningsaðilum, Vignir Vatnar, Skákskóli Íslands, Sambíóin og Vesturbæjarís sem lögðu til verðlaun mótsins.
Emilía Embla hafði yfirhöndina í eldri flokki frá miðju móti, og sigraði með glæsibrag með 6,5 af 7, rétt á eftir með 6 vinninga kom Halldóra og svo Sigrún Tara með 5 vinninga. Í yngri flokki sigraði Marey með 4 vinninga af 7. Marey Kjartandsóttir, Elsa María Bachadóttir, Tara Líf Ingadóttir og Silja Rún Jónsdóttir voru dregnar út í happdrætti og fengu inneign í Sambíó og Vesturbæjarís.
Yngri flokkur
- Verðlaun Marey Kjartansdóttir
- Verðlaun Elsa María Bachadóttir
- Verðlaun Emilía Klara Tómasdóttir
Eldri flokkur
- Verðlaun Emilía Embla B. Berglindardóttir
- Verðlaun Halldóra Jónsdóttir
- Verðlaun Sigrún Tara Sigurðardóttir
Kvennaskáknefnd stóð fyrir mótinu. Mótsstjóri var Jóhanna Björg Jóhannsdóttir. Henni til aðstoðar við skákstjórn voru Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir og Daði Ómarsson
Næsta mót í bikarsyrpunni mun fara fram laugardaginn 11. janúar, hlökkum til að sjá ykkur þar!